Myrt í miðju símtali við systur sína Kristín Ólafsdóttir skrifar 17. janúar 2019 13:59 Myndir úr öryggismyndavél sem teknar voru af Maasarwe kvöldið sem hún var myrt. Mynd/Victoria Police
Ísraelsk kona var myrt í áströlsku borginni Melbourne í gær en ráðist var á hana þegar hún var að ræða við systur sína í símann. BBC greinir frá. Lík hinnar 21 árs Aiia Maasarwe fannst í grennd við LaTrobe-háskólann í norðurhluta Melbourne á fimmtudagsmorgun. Maasarwe hafði tekið sporvagn heim til sín seint á miðvikudagskvöldið að lokinni uppistandssýningu og átti í samræðum við systur sína í gegnum síma á leiðinni. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu heyrði systir Maasarwe þegar ráðist var á hana og síminn datt í gólfið. Þá kveðst systirin hafa heyrt raddir á vettvangi í gegnum símann en hún hringdi áhyggjufull í lögreglu rétt áður en lík Maasarwe fannst á fimmtudagsmorgun. Lögregla hefur ekki útilokað að Maasarwe hafi verið nauðgað áður en hún var myrt en morðingjans er nú leitað. Þá fannst svört derhúfa með tölustöfunum 1986 og grár stuttermabolur skammt frá líkfundarstaðnum en lögregla hefur munina til rannsóknar. Einnig verða upptökur úr öryggismyndavélum í nágrenninnu skoðaðar í leit að morðingjanum. Maasarwe var nemi í kínversku og ensku við háskóla í Sjanghæ í Kína. Hún var í skiptinámi við LaTrobe-háskóla í Melbourne þegar hún var myrt. Morðið á Maasarwe þykir minna um margt á morðið á grínistanum Eurydice Dixon, sem var nauðgað og síðar myrt á leið sinni heim af uppistandi í Melbourne í fyrra. Málið vakti mikla reiði í Ástralíu og í kjölfarið skapaðist umræða um ofbeldi gegn konum í landinu.
Ástralía Ísrael Tengdar fréttir Reiði vegna morðs á grínista Morð á ungum áströlskum grínista hefur vakið gríðarlega reiði þar í landi. 15. júní 2018 08:14 Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Vučić játar ósigur Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Leikur á hnífsegg í Brasilíu Erlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira
Reiði vegna morðs á grínista Morð á ungum áströlskum grínista hefur vakið gríðarlega reiði þar í landi. 15. júní 2018 08:14