Hallgrímur Helgason, Sigrún Eldjárn og höfundar Flóru Íslands eru handhafar Íslensku bókmenntaverðlaunanna að þessu sinni. Höfundar hvers verks um sig fá milljón íslenskra króna í verðlaunafé auk heiðursins. Hallgrímur hefur verið tilnefndur fimm sinnum til þessara sömu verðlauna en árið 2001 hlaut hann Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Höfund Íslands.
Forseti Íslands, herra Guðni Th. Jóhannesson, afhenti verðlaunin 2018, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Verðlaunahöfum voru afhent skrautrituð verðlaunaskjöl og verðlaunagripir sem hannaðir er af Jóni Snorra Sigurðssyni á gullsmíðaverkstæði Jens; opin bók á granítstöpli með nafni verðlaunahöfundar og bókar hans.
Sem fyrr segir skiptast verðlaunin í þrjá flokka eftirfarandi:
Fræðirit og bækur almenns efnis
Hörður Kristinsson, Þóra Ellen Þórhallsdóttir og Jón Baldur Hlíðberg
Flóra Íslands -Blómplöntur og byrkingar
Útgefandi: Vaka Helgafell
Barna- og ungmennabækur
Sigrún Eldjárn
Silfurlykillinn
Útgefandi: Mál og menning
Fagurbókmenntir
Hallgrímur Helgason
Sextíu kíló af sólskini
Útgefandi: JPV útgáfa
Eins og lög gera ráð fyrir flutti formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, Heiðar Ingi Svansson, tölu og þakkaði hann stjórnvöldum mikið og vel fyrir lög sem gera ráð fyrir 400 milljóna stuðning við íslenska bókaútgáfu. Forseti Íslands kynnti niðurstöður dómnefndar og afhenti verðlaunin. Verðlaunahöfundar ávörpuðu gesti. Regína Ósk og Svenni Þór fluttu tvö lög á milli dagskráratriða.
Fjögurra manna lokadómnefnd valdi verkin úr hópi fimmtán bóka sem tilnefndar voru til verðlaunanna í desember á síðasta ári þegar fimm bækur voru tilnefndar í hverjum flokki. Lokadómnefndina skipuðu Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir, Steingrímur Þórðarson, Þórunn Sigurðardóttir og Gísli Sigurðsson sem var jafnframt var formaður nefndarinnar.

