Tónlist

Föstudagsplaylisti Finnboga Arnar

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Finnbogi Örn Einarsson fremstur í Great Grief flokki.
Finnbogi Örn Einarsson fremstur í Great Grief flokki. Gunnar Ingi Jones
Finnbogi Örn Einarsson er framtakssamur ungur þungarokksfrömuður. Hann er gítarleikari sveitarinnar Une Misére sem nýlega skrifaði undir samning við Nuclear Blast útgáfurisann, ásamt því að vera vókalisti síðharðkjarnasveitarinnar Great Grief.

Great Grief gáfu einmitt út sína aðra plötu á dögunum, Love, Lust and Greed, hjá bandarísku útgáfunni No Sleep Records. Í vikunni var svo tilkynnt að þeir myndu koma fram á hinni margrómuðu Roadburn-hátíð í Tilburg í Hollandi.

Útgáfu plötunnar verður fagnað með tónleikum á laugardaginn eftir viku, en þar koma einnig fram Elli Grill, Grit Teeth og DJ Dóra Júlía.

„Ætlunin með þessum lista er að reyna að troða gjörsamlega öllu sem ég gæti hugsað mér að hlusta á einn með sjálfum mér í einn 20 laga kassa,“ útskýrir Finnbogi, og segir að mörgu hafi þurft að fórna, „eins og allri kántrítónlistinni sem ég hlusta á, og mikið af pólítíska hardcorinu sem ég elska.“

Einhver laganna eru eftir listafólk sem Finnbogi deilir sviði með á næstu misserum, eins og áðurnefndur Elli Grill og Grit Teeth, ásamt Lingua Ignota.

Svo eru lögin með Gay For Johnny Depp, Author & Punisher og Billie Eilish á listanum „slagarar sem gætu látið fólki líða vel,“ eins og Finnbogi orðar það.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.