Tónlist

Föstudagsplaylisti Gunna Tynes

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Gunnar Örn í góðu yfirlæti.
Gunnar Örn í góðu yfirlæti. fbl/stefán
Gunnar Örn Tynes sem setti saman föstudagslagalistann að þessu sinni er líklega best þekktur sem einn af stofnendum raftónlistarsveitarinnar múm.

Síðasta breiðskífa sveitarinnar, Smilewound, kom út árið 2013 en sveitin hefur ekki setið auðum höndum síðan og hefur verið iðin við tónleikahald víðs vegar um heim.

Í síðasta mánuði kom svo út tónleikaplata sem inniheldur flutning sveitarinnar á kvikmyndatónlist sem meðlimir hennar sömdu fyrir þýsku þöglu kvikmyndina Menschen am Sonntag frá 1930.

Gunnar segir ekkert sérstakt þema vera á bak við listann en hann er nokkuð langur og fjölbreyttur, sólríkur framan af og kólnar eftir því sem líður á. Sem passar ágætlega við gluggaveður dagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.