Umsóknarfrestur um ungmennaráð heimsmarkmiðanna að renna út Heimsljós kynnir 8. maí 2019 12:30 Ungmennaráðið með ráðherrum ríkisstjórnarinnar. Forsætisráðuneyti
Eftir fáeina daga rennur út umsóknarfrestur um fulltrúa í ungmennaráði heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Ungmennaráðið tók fyrst til starfa í apríl á síðasta ári en nú er komið að árlegri endurnýjun fulltrúa. Opnað var fyrir umsóknir í síðasta mánuði á vef Stjórnarráðsins og óskað er eftir umsóknum frá ungmennum á aldrinum 13 til 18 ára. Umsóknarfrestur er til og með 13. maí, sem er næstkomandi mánudagur. Tólf fulltrúar verða valdir í ráðið. Þeir koma til með að fræðast og fjalla um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna ásamt því að vinna og miðla gagnvirku efni á samfélagsmiðlum um markmiðin og sjálfbæra þróun. Ungmennaráðið veitir stjórnvöldum, í gegnum verkefnastjórn heimsmarkmiðanna, aðhald og ráðgjöf við innleiðingu markmiðanna ásamt því að funda árlega með ríkisstjórn. Ungmennaráðið á fundi sex sinnum á ári en þar að auki hefur starfandi ungmennaráð tekið þátt í fjölmörgum viðburðum á síðastliðnu ári. Má þar meðal annars nefna þátttöku í Hringborði Norðurslóða í Hörpu, heimsþingi kvenleiðtoga, friðarráðstefnu Höfða friðarseturs og hátíðarhöldum í tengslum við fullveldisafmæli Íslands þann 1. desember síðastliðinn. Stofnun ungmennaráðsins er í samræmi við sáttmála ríkisstjórnarinnar þar sem kveðið er á um að framfylgja skuli ákvæðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, meðal annars um aukin áhrif barna í samfélaginu. Eitt af meginstefum heimsmarkmiðanna er jafnframt samvinna hagsmunaaðila. Með stofnun ungmennaráðs um heimsmarkmiðin er leitast við að gefa ungmennum vettvang til að vekja athygli á heimsmarkmiðunum og sjálfbærri þróun og skapa þannig jafningjum tækifæri til að láta rödd sína heyrast um fyrrgreind málefni. Fyrir ári þegar auglýst var í fyrsta sinn eftir fulltrúum í ungmennaráði var mikill áhugi meðal ungmenna í landinu á þátttöku. Þá bárust rúmlega 140 umsóknir um setu í ráðinu.Umsóknarform fyrir ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðannaNánari upplýsingar um heimsmarkmiðin má finna á heimsmarkmidin.isÞessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Innlent Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Innlent „Bara djók sem gekk of langt“ Innlent „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Innlent „Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaupfélaginu Innlent Kosningaspá Vísis: Stöðugleiki að komast á fylgi í borginni Innlent Loka eftir 65 ár: „Koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa“ Innlent „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Innlent Heldur að Kristrún muni banna Björgu að líta til hægri Innlent Íris Helga neitar sök Innlent