Ólafía keppir á LPGA-móti í Virginíu og leitar að kylfusveini Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. maí 2019 14:43 Ólafía keppir á tveimur LPGA-mótum í röð. vísir/getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir tekur þátt á Pure Silk Championship mótinu í golfi sem fer fram dagana 23.-26. maí. Mótið er hluti af LPGA-mótaröðinni í golfi og fer fram í Williamsburg í Virginíu. Ólafía var önnur tveggja sem fékk sérstakt boð frá styrktaraðilum að keppa á mótinu að því er fram kemur á kylfingur.is. Tækifærið virðist hafa komið óvænt upp og Ólafía auglýsti eftir kylfusveini á Instagram í dag. Skemmtilegur og yfirvegaður eru meðal hæfniskrafna.Veit einhver um kylfusvein fyrir Ólafíu?mynd/instagram-síða ólafíuÞetta verður fyrsta mót Ólafíu á LPGA á tímabilinu. Hún hefur leikið á sex mótinu á Symetra-mótaröðinni, þeirri næststerkustu í Bandaríkjunum. Þetta er þriðja árið í röð sem Ólafía keppir á Pure Silk Championship sem hét áður Kingsmill Championship. Hún komst ekki í gegnum niðurskurðinn 2017 og 2018. Árið 2017 lék hún á fjórum höggum yfir pari og á pari árið eftir. Ólafía tekur þátt á tveimur mótum í röð á LPGA en hún verður meðal þátttakenda á Opna bandaríska mótinu sem fer fram um næstu mánaðarmót.
Golf Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira