Ungir viðskiptavinir þeir kröfuhörðustu Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 25. maí 2019 09:00 Daniel Herman segir Weekday munu ganga enn lengra í stefnu sinni á næsta ári.
Fyrir árið 2030 stefna öll fyrirtæki í eigu H&M-samsteypunnar á að nota aðeins endurunnin eða sjálfbær hráefni og markmiðið fyrir árið 2040 er að með framleiðslu á fatnaði dragi fyrirtækið úr neikvæðum loftlagsáhrifum. Samsteypan er annar stærsti söluaðili fatnaðar í heiminum. Hún opnaði á síðasta ári H&M-verslanir hér á landi og hefur nú einnig opnað verslanir Cos, Monki og Weekday sem allar eru í eigu HM. Í dag er hlutfall endurunninna og sjálfbærra hráefna í heildina 57% svo fyrirtækinu gengur ágætlega að komast nær markmiði sínu. Fatamerkið Weekday er hins vegar einna lengst komið og hefur að auki margvísleg sjálfstæð samfélagsleg markmið. „Fyrirtæki þurfa að hegða sér eins og góðar manneskjur og ávinna sér virðingu fólks og viðskiptavina sinna,“ segir Daniel Herrman, framkvæmdastjóri Weekday. „Sjálfbærni skiptir öllu máli en einnig að huga að samfélagslegri ábyrgð í víðara samhengi, að því höfum við unnið. Það sem er rétt fyrir viðskiptavininn er líka rétt fyrir okkur og jörðina,“ segir hann og segir Weekday munu ganga enn lengra í stefnu sinni strax á næsta ári.Weekday starfar með ungu listafólki þar sem það starfrækir verslanir sínar. „Það er ekki hægt að segja ungu fólki hvað er í tísku, það verður að fá að hafa áhrif á það sjálft. Við viljum ekki boða sömu áherslur fyrir alla,“ segir Daniel sem segir unga viðskiptavini þá allra kröfuhörðustu. Það sé jákvætt og muni hafa góð áhrif á tískuiðnaðinn sem sé í hraðri þróun. „Það er engin ein framtíð ljós, því það eru margar leiðir til þess að tengjast fólki. Við kjósum að tengjast fólki í gegnum listir og sköpun. Það eru þó vissir hlutir í þróun samfélagsins sem munu hafa mikil áhrif, tæknibreytingar, sjálfbærni og umhverfið en líka siðferði og réttlæti,“ segir Daniel. Uppfært klukkan 15: Samkvæmt athugasemd frá fjölmiðlafulltrúa H&M á Íslandi er hlutfall endurunninna og sjálfbærra hráefna hjá fyrirtækinu 57% eftir því er kemur fram í sjálfbærniskýrslu fyrirtækisins.
Birtist í Fréttablaðinu H&M Mest lesið „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ Lífið „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Lífið Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Lífið Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður Lífið Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Gagnrýni Hvað veistu um… One Direction? Lífið „Hún er í hljóðverinu núna“ Lífið Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Lífið Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Lífið Fleiri fréttir „Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Stórbrotinn stíll Zendayu Geirvörtur og latex vekja athygli í París Osaka best klædd á Wimbledon Krýndur tískukóngur fótboltans Sjá meira