Lífið

Lífið leikur við hin nýtrúlofuðu Söru og Hauk Helga

Andri Eysteinsson skrifar
Barn á leiðinni og Haukur nýkominn af skeljunum.
Barn á leiðinni og Haukur nýkominn af skeljunum. Instagram/Haukurhp
Lífið leikur svo sannarlega við körfuboltalandsliðsmanninn Hauk Helga Pálsson og kærustu hans Söru D. Jónsdóttur.

Ekki bara er Sara komin 40 vikur á leið með stúlkubarn, heldur greinir Haukur frá því á Instagram-síðu sinni í dag að hann hafi skellt sér á skeljarnar og beðið besta vin sinn um að giftast sér, og Sara sagði já.

Haukur segir í færslunni ekki vera hægt að finna góðhjartaðri manneskju en Söru og með því að segja já hafi hún samþykkt heila lífstíð af skelfilegum bröndurum og hrekkjum.

Haukur Helgi hefur leikið um árabil með íslenska landsliðinu í körfuknattleik ásamt því að leika með franska liðinu Nanterre 92 við góðan orðstír.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.