Tveggja ára fangelsi fyrir að nauðga ungum næturgesti bróður síns Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. júlí 2019 14:08 Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Norðurlands Eystra á Akureyri. Vísir/Vilhelm
Karlmaður um fertugt hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að nauðga átján ára konu í september 2017. Unga konan hafði farið heim með bróður karlmannsins og lá við hlið hans í rúmi þegar karlmaðurinn braut á henni. DNA sýni úr nærbuxum ákærða var lykilgagn í málinu. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Norðurlands eystra á Akureyri á dögunum. Það var laugardagskvöld í september 2017 sem bræðurnir fóru út að skemmta sér. Var mikið áfengi haft við hönd og var eftirpartý á heimili bróðursins. Þar stunduðu bróðirinn og konan kynlíf og sofnuðu í svefnherberginu. Í framhaldinu kom hinn bróðirinn inn því hann taldi sig eiga að sofa þar.Fraus og gat ekki brugðist við Unga konan bar að hún hefði sofnað nakin í rúminu og svo vaknað við að maður væri að strjúka á henni kynfærin og sleikja. Taldi hún það fyrst vera bróðurinn en henni hafi brugðið þegar hún sá hann liggjandi við hliðina á sér. Fljótlega fattaði hún að um væri að ræða bróður mannsins sem hún hafði farið heim með. Hún sagðist fyrir dómi hafa frosið og ekki geta brugðist við. Karlmaðurinn hefði reynt að setja lim sinn í leggöng hennar en var ekki viss hvort það hefði tekist. Í það minnsta ekki þannig að þau hefðu getað stundað samfarir. Hún reyndi að vekja bróðurinn sem hún hafði farið heim með, hann rumskaði og sagði bróður sínum að fara fram til að segja fólki að fara úr samkvæminu. Hann hafi farið og konan ekki séð hann aftur. Konan sagðist í framhaldinu hafa klætt sig og reynt að segja bróðurnum hvað hefði gerst. Hún taldi hann ekki hafa meðtekið það sem hún sagði.Strax á neyðarmóttöku Konan fór strax úr húsi, hringdi í vinnuveitanda sinn og einnig vinkonu. Leitaði hún í framhaldinu til lögreglu og gekkst undir rannsókn á neyðarmóttöku á Akureyri. Var karlmaðurinn í framhaldinu handtekinn og látinn sæta réttarlæknisfræðilegri rannsókn. Tekið var stroksýni undan forhúð og úr innanverðum nærbuxum. Var allt sent í DNA greiningu. Niðurstaðan var sú að í sýnum innan af framhlið nærbuxna fannst DNA snið karlmannsins og stelpunnar svo ekki var um villst. Niðurstaðan var ekki jafn afdráttarlaus úr sýni undan forhúð. Líkurnar voru þó meiri en minni að þar væri sýni úr konunni. Karlmaðurinn neitaði sök og sagðist hafa yfirgefið herbergið þegar hann fattaði að stelpan væri í rúminu með bróður hans. Þá gerði hann athugasemd við að hann hefði verið drukkinn við fyrstu yfirheyrslu og enginn verjandi viðstaddur. Ekki hefði verið rætt við vitni í samkvæminu og niðurstaða úr DNA prófum væri ekki nægjanlega afgerandi. Niðurstöður gætu skýrst af því að hann hefði snert stúlkuna og svo lim sinn þegar hann fór á klósettið.Alvarlegt kynferðisbrot Dómurinn mat það svo að á grundvelli sönnunargagna hefði ákæruvaldinu tekist að sanna að karlmaðurinn hafi sett lim sinn inn í leggöng brotaþola. Ljóst þætti að hún hefði ekki getað veitt samþykki sitt enda verið sofandi þegar hann hóf að brjóta á henni. Hann hefði gerst sekur um alvarlegt kynferðisbrot gagnvart ungri konu sem hann hafði engin kynni haft af áður og lá sofandi og nakin í rúmi bróður hans. Var hæfileg refsing metin tveggja ára fangelsi en honum hefur ekki verið refsað áður. Hins vegar var litið til þess að brotið væri alvarlegt og beindist gegn mikilvægum hagsmunum. Sálfræðingur staðfesti fyrir dómi að stelpan sýndi skýr einkenni áfallastreituröskunar vegna umrædds atburðar. Hún hefði auk þess áður orðið fyrir alvarlegum áföllum. Þá var karlmaðurinn dæmdur til að greiða stelpunni 1,5 milljónir króna í bætur auk sakarkostnaðar upp á um 2,5 milljónir. Dóminn í heild má lesa hér.
Akureyri Dómsmál Kynferðisofbeldi Mest lesið Ætlaði ekki að trúa því að sonurinn hefði sjálfur staðið upp úr bílnum Innlent Norðmenn uggandi vegna mögulegra viðbragða Trump Erlent Tókst ekki að sanna að Brim bæri ábyrgð á dauða sonar þeirra Innlent Grínaðist með Möggu Stínu: „Fyrsta líflátshótunin kom 18 mínútum seinna“ Innlent Nóbelsnefndin hafi valið pólitík fram yfir frið Erlent Venesúelskur stjórnarandstæðingur hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Magga Stína í flugi á leið til Istanbúl Innlent Gummi reiður: „Kominn tími til að þeir sem ráða opni augun" Innlent Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Erlent Taívanir vilja reisa varnarhjúp gegn Kína Erlent Fleiri fréttir „Sorglegt“ ef börnin lesa ekki Laxness og Íslendingasögur Fyrstu skref til friðar á Gasa tekin og Friðarverðlaunin fara til Venesúela Leggja til tæplega 44 þúsund tonna loðnukvóta Grínaðist með Möggu Stínu: „Fyrsta líflátshótunin kom 18 mínútum seinna“ Magga Stína í flugi á leið til Istanbúl Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða Bein útsending: Athafnaborgin Reykjavík kynnt frá ólíkum hliðum Ætlaði ekki að trúa því að sonurinn hefði sjálfur staðið upp úr bílnum Tókst ekki að sanna að Brim bæri ábyrgð á dauða sonar þeirra Brotthvarf Laxness: „Ekkert sem kemur í staðinn fyrir að vera einn í sínum heimi með bók“ Þakklát Möggu Stínu og segir vopnahlé ljósið við enda ganganna Gummi reiður: „Kominn tími til að þeir sem ráða opni augun" Söguleg stund Ekki sjálfsvörn að berja með steypuklumpi í höfuðið Laxnessleysið skandall eða stormur í vatnsglasi? Vegagerðin sannfærð um kosti brúar umfram göng Tólf eldislaxar fundust í sex ám Rannsaka hvort bílstjórinn hafi dottað Bein útsending: Dagur landbúnaðarins „Alls ekki og engan veginn“ sé hægt að hagga ESB Selta olli rafmagnsleysi á Suðurlandi Friður á Gasa mögulega í sjónmáli og rætt við utanríkisráðherra Palestínu Mosfellingur hjá Strætó leiðir unga Framsóknarmenn „Hvað varð um að gera meira, hraðar?“ Veðrið setur strik í reikninginn Segjast hafa verið neydd til að krjúpa tímunum saman og lýsa yfir ást sinni á Ísrael Utanríkisráðherra Palestínu á Íslandi á sögulegum tímum Leit að meintum brennuvargi engu skilað Boða aftur til kvennaverkfalls fimmtíu árum eftir það fyrsta Lagði við Hverfisgötu eftir allt saman Sjá meira