Strákarnir misstu leikinn niður í jafntefli í lokin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. júlí 2019 14:30 Úr búningsklefa íslenska liðsins. Mynd/HSÍ
Íslenska sautján ára landsliðið gerði 21-21 jafntefli við Slóveníu í öðrum leik sínum á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í dag. Íslensku strákarnir náðu því ekki að fylgja eftir frábærum sigri á Frökkum í fyrsta leiknum sínum í gær. Kristófer Máni Jónasson var markahæstur í íslenska liðinu með sex mörk en þeir Guðmundur Bragi Ástþórsson og Arnór Viðarsson skoruðu þrjú mörk hvor. Brynjar Vignir Sigurjónsson varði átta skot þar af tvö vítaskot. Slóvenarnir tóku upp á því að taka Arnór Viðarsson úr umferð en hann skoraði ellefu mörk utan af velli í sigrinum á Frökkum í gær. Íslenska liðið var tveimur mörkum yfir, 21-19, þegar 90 sekúndur voru eftir af leiknum en Slóvenar skoruðu tvö síðustu mörkin og tryggðu sér jafntefli. Staðan var jöfn í hálfleik, 12-12, eftir að íslenska liðið hafði verið 10-7 yfir rétt fyrir hálfleik. Íslenska liðið náði líka fjögurra marka forystu í seinni hálfleiknum, 17-13, en fékk þá á sig fjögur mörk í röð. Ísland komst aftur tveimur mörkum yfir en missti sigurinn frá sér á lokasekúndunum. Svekkjandi fyrir strákana sem mæta Króatíu í þriðja leik riðlakeppninnar á morgun.Ísland - Slóvenía 21-21 (12-12)Mörk Íslands: Kristófer Máni Jónasson 6 Guðmundur Bragi Ástþórsson 3/1 Arnór Viðarsson 3 Reynir Freyr Sveinsson 2 Tryggvi Þórisson 2 Benedikt Gunnar Óskarsson 2/1 Arnór Ísak Haddsson 1 Jakob Aronsson 1 Ísak Gústafsson 1Varin skot: Brynjar Vignir Sigurjónsson 8/2
Handbolti Mest lesið Átján ára vonarstjarna pílukastsins dæmd í átta ára bann Sport Oft spurt hvernig sé að vinna með „fúla Íslendingnum“ Handbolti Hill hneykslaður: „Er Schumacher harmleikurinn ekki nóg fyrir sumt fólk?“ Formúla 1 Ómar Ingi ekki með á HM Handbolti Óánægður eftir brot á leikmanni Þóris: „Lífshættulegt“ Handbolti Ómar með þrjú slitin liðbönd: „Líklegast er HM ekki möguleiki“ Handbolti Þegar stelpurnar okkar unnu Þjóðverja Handbolti Grínaðist með 115 ákærur City: „Ég endurtek, þetta var grín“ Enski boltinn „Miklu betri og stærri þjálfarar en ég sem hafa verið reknir“ Körfubolti Van Nistelrooy sár yfir því að hafa verið látinn fara frá United Enski boltinn Fleiri fréttir „Við sjáum möguleika þarna“ „Þær eru búnar að taka nokkra krísufundina“ Ómar með þrjú slitin liðbönd: „Líklegast er HM ekki möguleiki“ Útilokar ekki að Ómar Ingi verði með á HM Þegar stelpurnar okkar unnu Þjóðverja Ómar Ingi ekki með á HM „Þýska liðið er allt önnur skepna“ „Förum léttar inn í þennan leik“ Leikdagur í Innsbruck: Hitum logsuðutækin Oft spurt hvernig sé að vinna með „fúla Íslendingnum“ Óánægður eftir brot á leikmanni Þóris: „Lífshættulegt“ „Þá rennur stressið af manni“ Slóvenía bíður Íslands en ballið búið hjá heimakonum „Gæsahúð allsstaðar“ Hugsaði lítið og stressaði sig minna Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Skýrsla Vals: Söguleg snilld Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ „Sjúklega stolt af þessum hóp“ „Ég held að við getum alveg staðið í Þjóðverjum“ Orri skoraði sjö í risasigri Nítján íslensk mörk í öruggum sigri Kolstad Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Hollendingar á leið upp úr íslenska riðlinum „Þær eru svolítið þyngri“ Þýsku meistararnir að ná vopnum sínum á ný Arnar Birkir fór á kostum í sigri Færeysku stelpurnar náðu sögulegu jafntefli á EM Sjá meira
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik