Matsuyama kominn á toppinn eftir níu fugla hring Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. ágúst 2019 23:34 Matsuyama hefur ekki tapað höggi á mótinu. vísir/getty
Japaninn Hideki Matsuyama er með eins höggs forystu eftir fyrstu tvo hringina á BMW Championship mótinu í golfi. Þetta er næstsíðasta mótið í úrslitakeppninni um FedEx bikarinn. Matsuyama lék manna best í dag, eða á níu höggum undir pari. Hann fór upp um 24 sæti á milli daga. Japaninn lék afar vel í dag og fékk níu fugla og níu pör. Hann hefur ekki enn tapað höggi á mótinu. Bandaríkjamennirnir Patrick Cantlay og Tony Finau eru jafnir í 2. sæti á samtals ellefu höggum undir pari. Finau lék á sex höggum undir pari í dag en Cantlay á fimm.Bandaríkjamennirnir Justin Thomas og Jason Kokrak voru efstir og jafnir eftir fyrsta hringinn. Thomas lék á þremur höggum undir pari í dag og er í 4. sæti. Kokrak lék hins vegar á einu höggi yfir pari og er kominn niður í 21. sæti. Tiger Woods er í 48. sæti á samtals tveimur höggum undir pari. Hann lék á einu höggi undir pari í dag. Brooks Koepka, efsti maður heimslistans, féll niður í 25. sæti eftir að hafa leikið á einu höggi undir pari í dag. Bein útsending frá þriðja hring BMW Championship hefst klukkan 16:00 á morgun.
Golf Tengdar fréttir Allt annað að sjá Tiger Woods sem er samt sex höggum á eftir fyrsta manni Bandaríkjamennirnir Justin Thomas og Jason Kokrak eru efstir og jafnir eftir fyrsta daginn á BMW Championship mótinu í golfi sem er næstsíðasta mótið í úrslitakeppninni um FedEx bikarinn. 16. ágúst 2019 12:15 Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira
Allt annað að sjá Tiger Woods sem er samt sex höggum á eftir fyrsta manni Bandaríkjamennirnir Justin Thomas og Jason Kokrak eru efstir og jafnir eftir fyrsta daginn á BMW Championship mótinu í golfi sem er næstsíðasta mótið í úrslitakeppninni um FedEx bikarinn. 16. ágúst 2019 12:15