Hengilshlaupið hófst í kvöld sólarhring á eftir áætlun Eiður Þór Árnason skrifar 7. september 2019 22:51 Ræsing fyrstu keppenda í kvöld. Aðsend
Hengils Ultra hlaupið hófst klukkan átta í kvöld en mótinu var frestað um sólarhring vegna veðurs í morgun. Tuttugu keppendur taka þátt í hlaupinu og hlaupa hundrað kílómetra inn í nóttina og fram undir morgun og munu ljúka leik einhvern tíma eftir hádegi á morgun, sunnudag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skipuleggjendum hlaupsins. Hengill UltraTrail er lengsta utanvegahlaup á Íslandi og er nú haldið áttunda árið í röð. Hlaupið er frá Skyrgerðinni í Hveragerði, upp Reykjadal að Ölkelduhnjúki og í kring um hann. Þá heldur hluti hóps áfram inn að Hengli og niður Sleggjubeinsskarð. Í fyrramálið verða ræstir keppendur sem hlaupa fimmtíu kílómetra og svo verða keppendur í 25 kílómetrum ræstir klukkan 13:00. Þeir sem hlaupa tíu og fimm kílómetra verða aftur á móti ræstir klukkan 14:00 á morgun. Í tilkynningu sem var gefin út fyrr í dag kom fram að rigning síðasta sólarhringinn hafi verið of mikil á keppnissvæðinu og því hafi verið tekin ákvörðun um að fresta hlaupinu af öryggisástæðum. Algjör metskráning er í mótið í ár sem haldið er í Hveragerði en fjöldi keppenda nálgast nú 400 og koma þeir alls staðar af úr heiminum. Keppendur frá átján þjóðlöndum eru skráðir til leiks en þeir koma frá Bandaríkjunum, Kanada, Nýja Sjálandi, Belgíu, HongKong, Pólandi, Frakklandi, Sviss, Þýskalandi, Svíþjóð, Litháen, Hollandi, Slóveníu, Finnlandi, Noregi, Rúmeníu, Slóvakíu og Íslandi.
Hlaup Hveragerði Tengdar fréttir Hengilshlaupinu frestað vegna veðurs Hengils Ultra hlaupinu hefur verið frestað þar til í kvöld vegna veðurs. 7. september 2019 14:24 Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Sjá meira
Hengilshlaupinu frestað vegna veðurs Hengils Ultra hlaupinu hefur verið frestað þar til í kvöld vegna veðurs. 7. september 2019 14:24