Menning

Hef á tilfinningunni að hverfisverslunum fjölgi

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Sigríður kveðst hafa gefið sér góðan tíma til að kynnast bæði búðareigendum og viðskiptavinum.
Sigríður kveðst hafa gefið sér góðan tíma til að kynnast bæði búðareigendum og viðskiptavinum. Fréttablaðið/Sigtryggur Ari
Á ljósmyndasýningu Sigríðar Marrow, kennara í Salaskóla, Kaupmaðurinn á horninu, birtist sá hlýi og mannlegi andblær sem hverfisverslunum fylgir. Hún lét sér ekki nægja að mynda slíkar búðir á höfuðborgarsvæðinu, heldur ferðaðist um landið og fangaði stemningu lítilla matvöruverslana. Sýningin er í Skotinu á Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Tryggvagötu 17, 6. hæð.

Myndirnar tók Sigríður árið 2016 í tengslum við meistaraverkefni sitt í menningarmiðlun. „Upphaflegu hugmyndina fékk ég þegar ég fór inn í Kjötborg á Ásvallagötunni og skynjaði andann þar, hann var svo gerólíkur stórmörkuðunum að mér fannst ég vera komin í annan heim. Ég held að eignir í því hverfi muni hríðlækka í verði ef kaupmennirnir loka versluninni. Þeir þekkja alla og veita svo mikla þjónustu, geyma jafnvel húslykla fyrir foreldra ef krakkar skyldu læsast úti,“ lýsir hún.

Sigríður kveðst hafa farið í þriggja vikna ferð um landið og myndað 34 búðir, sumar hafa þegar lagt upp laupana. „Þetta er bara sýnishorn. Ef ég fæ einhvern tíma stærra sýningarrými get ég haft alla með og þetta er enn verk í vinnslu.“ Búðirnar eru ekki allar á netinu og Sigríður kveðst hafa frétt af þeim hjá hinum og þessum þegar hún var í ferðinni. Hún hafi að sjálfsögðu alltaf hringt á undan sér og allir hafi tekið henni vel. „Mér fannst bara allir yndislegir og hlýir. Fólk þarf líka að vera mannvinir til að veita svona þjónustu.“

Þrír kaupmenn lögðu á sig ferð til að mæta á opnun sýningarinnar hjá Sigríði. „Einar Ólafsson, sem er 82 ára, kom frá Akranesi og spjallaði heillengi, annar bróðirinn í Kjöthöllinni kom og líka konan sem rekur búðina á Raufarhöfn,“ lýsir hún og kveðst ala þá von í brjósti að svona litlum búðum vaxi fiskur um hrygg.

„Ég hef á tilfinningunni að hverfisverslunum fjölgi aftur, kannski í annarri mynd. Það væri alger draumur.“

 
 
 
View this post on Instagram
Opening 6pm on culture night

A post shared by Sigga Marrow (new) (@sigridurmarrow) on Aug 22, 2019 at 11:29am PDT






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.