Lífið

Pantaði áttatíu hvíta kúlupenna frá Japan

Steingerður Sonja Þórisdóttir skrifar
Nokkur verkanna eru unnin í stúdíóinu sem listamaðurinn Narfi rak með félögum sínum úti á Granda í Reykjavík. Þau eru unnin með kaffi og bleki.
Nokkur verkanna eru unnin í stúdíóinu sem listamaðurinn Narfi rak með félögum sínum úti á Granda í Reykjavík. Þau eru unnin með kaffi og bleki.
Klukkan fimm í dag opnar listamaðurinn og grafíski hönnuðurinn Narfi sýningu í Núllinu, sem er gallerí við Bankastræti. Í rýminu var á árum áður almenningssalerni. Narfi segir að sýningin sé nokkurs konar samtíningur af verkum hans, en áður stóð til að hann væri með gjörning í rýminu ásamt félaga sínum þessa helgi.

„En svo þurfti hann að fara fyrir dóm vegna vangoldinna skólagjalda. Ég varð því bara að redda þessu sjálfur og vildi í þeirri viðleitni minni koma í veg fyrir að allt færi sömu leið og hjá félaga mínum. Þannig að verkin eru flest til sölu,“ segir hann.

Narfi kallar sýninguna Eitthvað úr ísskápnum, sem er vísun í samtíningsyfirbragðið sem hún hefur.

„Þetta er smá eins og þegar maður tekur eitthvað af handahófi úr ísskápnum og hendir í ommelettu. Það er fín leið til að lýsa sýningunni.“

Úr því að sýningin samanstendur af hinum og þessum verkum er ekki eitt eiginlegt þema á henni.

„Þetta eru málverk, teikningar og prentverk,“ segir Narfi, en hann útskrifaðist úr grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands 2013.

„Það verða nokkur verk á sýningunni sem mér þykir alveg einstaklega vænt um, en ég gerði þau þegar ég var með stúdíó úti á Granda ásamt félögum mínum. Það var mjög áhugaverður og skemmtilegur tími. Verkin eru gerð með kaffi og bleki.“

Narfi heillast af óhefðbundnum aðferðum í listsköpun sinni. Í apríl hélt hann einkasýningu á verkum sem voru gerð með því að festa kúlupenna á borvél.

„Nú er ég að leita að sýningarplássi fyrir framhaldið á þeirri sýningu. Hún verður nokkurs konar andstæða, því ég var að panta áttatíu hvíta kúlupenna frá Japan. Svo mun ég festa þá á borvélar og gera verk á svartan pappa. Það verður þó meira nákvæmar teikningar en á síðustu sýningu.“

Sýningin Eitthvað úr ísskápnum verður opnuð klukkan 17.00 í Núllinu galleríi í Bankastræti 0 í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.