Tugir barna deyja úr beinbrunasótt í Hondúras Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 20. september 2019 19:00 Á sjúkrahúsi í Managua. AP/Alfredo Zuniga
Að minnsta kosti 135 hafa farist í Hondúras úr beinbrunasótt á árinu. Þar af eru um tveir þriðju hlutar börn. Enn er beðið eftir staðfestingu á að fleiri andlát megi rekja til sjúkdómsins í landinu. Til viðbótar hafa tugir farist í Gvatemala, Mexíkó og Níkaragva og hafa ekki svo margir látið lífið úr veikinni frá árinu 2013. Þá var sóttin verst í Mexíkó og heimti líf 192. Samkvæmt upplýsingum af vef Landlæknis smitast beinbrunasótt með moskítobiti. Blæðandi beinbrunasótt getur leitt til dauða í um helmingi tilfella ef sjúkdómurinn er ekki meðhöndlaður og eru börn og unglingar í mestri hættu. „Hér geisar faraldur. Á um fjögurra ára fresti brýst út beinbrunasóttarfaraldur, aðallega vegna lélegs hreinlætis og skorts á fræðslu um sýkt vatn,“ sagði Sara Hernandez, læknir í Hondúras. Sextán höfðu farist úr veikinni í Hondúras undanfarin fimm ár og þykir kæruleysi hafa gert faraldurinn verri. Fólk sagt hafa leitað læknisaðstoðar of seint. Þá ríkir einnig mikil óreiða í landinu og hefur áformum Juans Hernandez forseta í heilbrigðiskerfinu verið harðlega mótmælt. Hernandez var endurkjörinn árið 2017 og sakaður um kosningasvik.
Hondúras Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Vučić játar ósigur Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Sjá meira