„Við hjá Lindex viljum styrkja og efla konur því þegar allar standa saman, verðum við enn sterkari. Við höfum hannað línu með flíkum sem henta við öll tilefni og hægt er að nota á mismunandi vegu. Við vonum að í línunni geti allar konur geti fundið sitt uppáhald sem passar við þeirra persónulega stíl. Línan er hönnuð fyrir góðan málstað og er í takt við það sem við hjá Lindex stöndum fyrir,“ segir Pia Ekholm, hönnunar- og innkaupastjóri hjá Lindex.

Í október renna tíu prósent af sölu línunnar til styrktar baráttu Krabbameinsfélags Íslands við brjóstakrabbamein hér á landi. Segir enn fremur að Lindex hafi stutt dyggilega við Krabbameinsfélag Íslands síðustu sjö ár og hafi tileinkað októbermánuð baráttunni. Með hjálp viðskiptavina sinna hefur Lindex á Íslandi safnað rúmlega 18 milljónum króna til styrktar baráttunni gegn brjóstakrabbameini.
Forsala á bleiku línunni hefst með bleiku boði kl. 11 í Lindex Kringlunni á morgun.