Réðust á lögreglu þegar leiðtoginn var handsamaður Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 18. október 2019 07:25 Nokkrir eru sagðir hafa látist í bardaganum. Myndin er frá vettvangi. Vísir/getty
Til harðra átaka kom á milli öryggissveita Mexíkóstjórnar og liðsmanna Sinaloa-eiturlyfjahringsins í borginni Culuiacan í norðurhluta Mexíkó í gærkvöldi. Átökin blossuðu upp þegar lögreglumenn fundu einn af leiðtogum hringsins, Ovidio Guzman Lopez, við venjubundið eftirlit. Ovidio Guzman er sonur eins alræmdasta eiturlyfjabaróns Mexíkó, El Chapo, sem margsinnis slapp undan réttvísinni uns hann var að lokum handsamaður og fluttur til Bandaríkjanna þar sem hann afplánar nú lífstíðardóm. Átökin í gær hófust þegar Ovidio var handtekinn en þá gerðu félagar hans þungvopnaðir árás á lögregluna til að reyna að frelsa hann. Fregnir af málinu eru fremur óljósar en svo virðist sem að eftir harða bardaga hafi Guzman verið sleppt úr haldi, að lokinni yfirheyrslu, eins og lögreglan orðar það. Nokkrir eru sagðir hafa látist í bardaganum og á myndum má sjá nokkur ökutæki í ljósum logum en mikil hræðsla greip um sig meðal almennings á götum borgarinnar.
Mexíkó Mest lesið Eins og að vera staddur í martröð og geta ekki vaknað Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Erlent Ætla að opna Bláa lónið 29. nóvember Innlent „RÚV er sá fjölmiðill sem er líklega einna lengst til vinstri á Íslandi“ Innlent Hlutverk flokksforingja stórlega ofmetið í kosningabaráttunni Innlent Stöðugt gos og engir skjálftar Innlent Segist svikin af Viðreisn og segir sig úr flokknum Innlent Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Innlent Rafmagnsmastur í hættu vegna hraunflæðis Innlent Fleiri fréttir Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Leita móður ungabarns sem fannst látið á víðavangi Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn Bolsonaro og félagar kærðir fyrir valdaránstilraun Trump-liðar heita aðgerðum gegn sakamáladómstólnum Útlit fyrir að Scholz leiði flokk sinn til kosninga þrátt fyrir óvinsældir Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Kostnaðurinn við krýningu Karls konungs 13 milljarðar króna Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Gaetz ætlar sér ekki að verða dómsmálaráðherra Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Meina fyrstu trans þingkonunni að fara á kvennaklósettið Fyrsta nærmyndin af stjörnu utan Vetrarbrautarinnar Gefa út handtökuskipun á hendur Netanjahú Fjögur ungmenni nú látin af völdum tréspírans Skutu fyrstu langdrægu skotflauginni að Úkraínu Hugmynd um banana á vegg seldist á 850 milljónir John Prescott fallinn frá Siðanefndin klofin í máli Gaetz en gögn farin að leka Høiby í vikulangt gæsluvarðhald Fara fram á tveggja vikna gæsluvarðhald yfir stjúpsyninum NATO tryggi lykilinnviði eftir ætluð spellvirki í Eystrasalti Hlaut dauðadóm fyrir að eitra fyrir fjórtán vinum með blásýru Hótar að fella stjórnina í skugga „pólitísks dauðadóms“ Mafíuforingi sækist eftir þingsæti í Dyflinni Heitir peningaverðlaunum og lausn þeim sem frelsa gísla Sjá meira