Lífið

Vissi ekki að mamma hennar hefði átt myndir af pabbanum öll þessi ár

Stefán Árni Pálsson skrifar
Guðrún Andrea Sólveigardóttir fékk svör við spurningum um pabba sinn. Þau voru hins vegar ekki falleg.
Guðrún Andrea Sólveigardóttir fékk svör við spurningum um pabba sinn. Þau voru hins vegar ekki falleg.
Guðrún Andrea Sólveigardóttir vissi ekki af því að mamma hennar ætti mynd af pabba hennar fyrr en hún settist niður til fundar með Sigrúnu Ósk Kristjánsdóttur í aðdraganda þriðju þáttaraðar Leitarinnar að upprunanum.

Foreldrar Guðrúnar Andreu voru bara táningar þegar hún kom í heiminn. Þau höfðu kynnst í enskuskóla í Bretlandi. Sólveig frá Íslandi og hann frá Spáni.

Fyrir um áratug ákvað Guðrún að flytja til Barcelona og reyna að finna föður sinn en án árangurs. Leitaði hún til Sigrúnar Óskar sem tók málið að sér í Leitinni að upprunanum.

„Svo fer ég og hitti mæðgunar og við setjumst niður við eldhúsborðið. Eitt það fyrsta sem ég spyr er: Hvernig er það, eru til einhverjar myndir af honum? Þá svarar þær eiginlega samtímis. Guðrún segir nei og mamma hennar segir já,“ rifjar Sigrún Ósk upp í hlaðvarpinu Á bak við tjöldin á Vísi.

„Ég bara horfði á þær til skiptis. Bara, bíddu við,“ segir Sigrún.

Til marks um hvernig málið var vaxið

Í ljós kom að Sólveig átti myndir af honum frá því í náminu úti í Bretlandi sem voru vel geymdar í einhverjum kassa. Guðrún hafði aldrei vitað af þeim og mamma hennar gaf sér að Guðrún hefði vitað af þeim.

„Mér fannst þetta mjög fróðlegt og þær hlógu mikið að þessu.“

Guðrún segir þetta til marks um hvernig málið liggi. Pabbi hennar hafði engan áhuga á að vita af henni og hún átti sjálf sterkt bakland á Íslandi í fjölskyldu sinni.

„Ég bara hef ekkert spurt. Ég hef ekki haft áhuga. Ég átti tvo pabba og vantaði ekkert endilega þriðja,“ hefur Sigrún Ósk eftir Guðrúnu Andreu.

Guðrún Andrea fékk að lokum þau svör að faðir hennar væri langt leiddur heróínfíkill og væri í fangelsi á Spáni.

Í þættinum Á bak við tjöldin á Vísi er kafað dýpra í áhugaverða þætti og kvikmyndir. Þáttin má heyra hér að neðan.


Tengdar fréttir

Fékk kvíðakast á koddanum í Kólumbíu

Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, þáttastjórnandi í Leitinni að upprunanum, segist hafa átt erfitt með svefn fyrstu nóttina í Bogota í Kólumbíu. Þangað var hún komin með Þórunni Kristínu Sigurðardóttur í leit að móður hennar og fjölskyldu.

Brotnaði niður í Kólumbíu þegar hún fékk að heyra sannleikann

Þórunn Kristín Sigurðardóttir var ættleidd frá Kólumbíu árið 1981, aðeins nokkurra vikna gömul. Hún segir að áhuginn á upprunaleit hafi kviknað fyrir um tveimur árum en hún vissi lítið sem ekkert um rætur sínar í Kólumbíu fyrr en hún skoðaði ættleiðingarskjölin sín í fyrsta skipti í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.