Íslendingar fluttir á sjúkrahús eftir hópárás Stefán Ó. Jónsson skrifar 23. október 2019 08:06 Brighton á suðurströnd Englands. Getty/Anadolu
Tveir íslenskir ferðamenn voru fluttir á sjúkrahús eftir að ráðist var á þá í miðborg Brighton í Bretlandi, aðfaranótt laugardags. Staðarmiðlar í borginni segja hóp dökkklæddra manna hafa veist að Íslendingunum, barið þá og úðað óþekktu efni á andlit þeirra. Vitni urðu að árásinni sem gátu gefið lögreglu greinargóða lýsingu á hópnum sem að henni stóð. Lögreglumenn eiga að hafa hlaupið uppi tvo árásarmannanna, sem báðir eru sagðir 17 ára gamlir og grunaðir um alvarlega líkamsárás og brot á vopnalögum. Annar þeirra er aukinheldur sagður hafa haft fíkniefni og búnaði til innbrota í fórum sínum. Íslendingarnir tveir voru fluttir á Royal Sussex County-sjúkrahúsið í Brighton til aðhlynningar, þar sem gert var að andlitsáverkum þeirra. Þeir hafa nú verið útskrifaðir. Hinum handteknu var sleppt úr haldi gegn tryggingu og er gert að koma fyrir dómara þann 16. nóvember næstkomandi. Haft er eftir rannsóknarlögreglumanni á vef The Argus að þetta hafi verið „ógeðfelld árás á gesti borgarinnar,“ og biðlar hann til vitna um að gefa sig fram og aðstoða þannig lögreglu við rannsókn málsins.Veistu meira um málið? Sendu okkur póst á netfangið ritstjorn@visir.is
Bretland England Íslendingar erlendis Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Sjá meira