Valur seig fram úr undir lokin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. nóvember 2019 18:30 Lovísa skoraði níu mörk fyrir Val. vísir/bára
Valur minnkaði forskot Fram á toppi Olís-deildar kvenna í handbolta niður í eitt stig með sigri á Aftureldingu, 19-27, í síðasta leik 9. umferðar. Afturelding er án stiga á botni deildarinnar. Líkt og í fyrsta leik liðanna á tímabilinu lék Afturelding vel lengst af í fyrri hálfleik. Þegar sex mínútur voru eftir af fyrri hálfleik kom Roberta Ivanauskaite Aftureldingu yfir, 12-11. Þá tók Valur við sér, skoraði fimm mörk gegn einu og leiddi með þremur mörkum í hálfleik, 13-16. Valskonur skoruðu fyrstu tvö mörkin í seinni hálfleik og komust fimm mörkum yfir. Mosfellingar gáfust ekki upp, skoruðu þrjú mörk í röð og minnkuðu muninn í 17-19. Valur svaraði með þremur mörkum í röð og náði aftur heljartaki á leiknum. Undir lokin jókst munurinn á liðunum og á endanum munaði átta mörkum á þeim, 19-27. Lovísa Thompson var markahæst í liði Vals með níu mörk. Ásdís Þóra Ágústsdóttir skoraði sjö mörk og Díana Dögg Magnúsdóttir fimm. Ivanauskaite skoraði átta mörk fyrir Aftureldingu.
Olís-deild kvenna Mest lesið Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Hulda Clara fagnaði sigrinum með því að hoppa út í vatnið Golf Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Körfubolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Sjá meira