Eldsvoði á Eyrinni á Akureyri Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 17. nóvember 2019 08:01 Ekki er vitað hvort einhver hafi verið í íbúðinni þegar eldurinn kom upp. Vísir/Tryggvi Páll Tryggvason
Klukkan 05:14 í nótt fengu lögregla og slökkvilið á Akureyri tilkynningu um eld í íbúðarhúsi við Norðurgötu. Strax var ljóst að um mikinn eld var að ræða en húsið er gamalt timburhús og var það í ljósum logum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Norðurlandi Eystra hefur erfiðlega gengið að ráða niðurlögum eldsins og leggur talsverðan reyk yfir hluta Oddeyrarinnar. Eru íbúar beðnir að loka gluggum hjá sér meðan þetta ástand varir. Meðfylgjandi myndband tók fréttamaður okkar á vettvangi. Í húsinu eru þrjár íbúðir og náðu íbúar tveggja þeirra að koma sér út. Ekki hefur tekist að staðfesta það hvort að einhver hafi verið inni í þeirri íbúð sem eldurinn kom upp í. Slökkvistarf er enn í gangi á vettvangi. Uppfært 08:20 „Búið er að slökkva eldinn að mestu. Nú er verið að rífa þakið af til að komast að restinni af eldinum,“ segir Vigfús Bjarkason, varðstjóri hjá Slökkviliði Akureyrar í samtali við fréttastofu. Enn er töluverður reykur á svæðinu þó að hann sé að minnka, íbúar eru því beðnir um að hafa glugga áfram lokaða. Vigfús segir að ekki sé búið að fara inn í húsið þar sem það sé ekki talið öruggt. Húsið er timburhús klætt með bárujárni og er það ónýtt. Slökkvistarf verður áfram á svæðinu næstu klukkustundirnar og biður Vigfús íbúa að halda sig frá svæðinu og að virða lokanir. Uppfært 10:15 Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði hefur fengist staðfest að enginn var í íbúðinni þar sem eldurinn kom upp. Vísir/Tryggvi Páll TryggvasonVísir/Tryggvi Páll TryggvasonFréttin hefur verið uppfærð.
Akureyri Slökkvilið Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Innlent Eldur í Árbænum Innlent Fleiri fréttir Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Malbika á Reykjanesbraut í kvöld 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Sjá meira