Fimmtugar hollenskar konur neita sök í kókaínmáli Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. nóvember 2019 08:00 Konurnar hafa verið í gæsluvarðhaldi í þrjá mánuði. Sá tími dregst frá refsingunni verði þær fundnar sekar. Vísir/Vilhelm
Tvær rúmlega fimmtugar hollenskar konur neita sök í máli héraðssaksóknara á hendur þeim fyrir innflutning á rúmlega kílói af kókaíni til landsins þann 29. ágúst síðastliðinn. Konurnar eru par og voru með stóran hluta efnisins innvortis.Fréttastofa greindi frá málinu í september síðastliðnum en konurnar hafa verið í gæsluvarðhaldi í fangelsinu á Hólmsheiði síðan þær voru handteknar. Þær komu til landsins með áætlunarflugi Icelandair frá Brussel í Belgíu. Við leit í fórum annarrar konunnar fundust 237 grömm af kókaíni af 58% styrkleika innvortis og í nærbuxum konunnar. Hin konan faldi 775 grömm af kókaíni innvortis en efnið var af styrkleika 61%. Reikna má með að efnið yrði þynnt að minnsta kosti til helminga fyrir götusölu og næmi götuvirði efnanna tugum milljóna króna. Brot kvennanna varðar 173. grein almennra hegningarlaga en hámarksrefsing er tólf ára fangelsi. Í sambærilegu máli fyrir fjórum árum hlutu tvær franskar stúlkur fimmtán mánaða fangelsisdóm fyrir brot sín. Aðalmeðferð í málinu fer fram þann 13. desember næstkomandi.
Dómsmál Fíkniefnavandinn Keflavíkurflugvöllur Tollgæslan Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira