Jólakúlur með listarinnar höndum Elín Albertsdóttir skrifar 30. nóvember 2019 15:00 Listakonurnar fimm með tréð sem þær hafa skreytt með eigin jólakúlum. Guðný Hafsteinsdóttir lengst til vinstri, þá Katrín V Karlsdóttir,Guðný M Magnúsdóttir, á móti. SIGTRYGGUR ARI
Fimm listakonur sem eru hluti þeirra sem reka galleríið Kaolin fengu þá skemmtilegu hugmynd að hanna eigin jólakúlur. Listakonurnar leggja mikinn metnað í hverja kúlu og engin er eins. Listakonurnar fimm, Guðný Hafsteinsdóttir, Katrín V. Karlsdóttir, Guðný M. Magnúsdóttir, Dagný Gylfadóttir og Embla Sigurgeirsdóttir, hönnuðu jólakúlurnar og fóru með þær í Grasagarðinn í Laugardal þar sem þær skreyttu með þessum fallegu íslensku kúlum. Listrænt handbragð þeirra fékk að geisla úti í náttúrunni. „Hugmyndin um að skreyta tré úti í náttúrunni vaknaði í spjalli á fundi hjá okkur. Í fyrstu ætluðum við bara að gera þetta fyrir heimasíðuna okkar en svo kom löngunin að gera eitthvað nýtt og skemmtilegt og setja afrakstur vinnu okkar á tré í Laugardal. Okkur þótti ekki verra að komast í jólablaðið með þetta,“ segir Guðný í samtali við Fréttablaðið en hún hlaut Skúlaverðlaunin á fimmtudag fyrir jólakúluna sína á Ráðhúsmarkaðinum. Átta konur reka Kaolin á Skólavörðustíg 5 en það varð tíu ára í fyrra. Þær skiptast á að standa vaktina og geta um leið kynnst viðskiptavinum sínum. „Við getum sagt frá hlutunum okkar án nokkurra milliliða,“ segir Guðný. Jólakúlurnar fást hjá þeim stelpum í galleríinu og þar er hægt að skoða úrvalið.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Prins póló kökur Jólin Villibráð á veisluborð landsmanna Jól Rjómalöguð sveppasúpa Jólin Jóla-aspassúpa Jól Uppruni jólasiðanna Jól Jólakaka frá ömmu Jólin Gott er að gefa Jólin Hátíðarbrauð frá Ekvador Jól Endurgerð á ömmusalati Jól Fyrir þá sem hafa tíu þumalfingur Jól