Valdís Þóra komst í gegnum niðurskurðinn á lokamóti LET í Kenía Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. desember 2019 15:57 Valdís Þóra Jónsdóttir. Getty/Mark Runnacles
Valdís Þóra Jónsdóttir komst í gegnum niðurskurðinn á lokamóti LET Evrópumótaraðarinnar en hafði bara eitt högg upp á að hlaupa. Lokamót tímabilsins á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu í kvennaflokki fer fram 5.-8. desember í Kenía en það mót er jafnframt sextánda mótið hjá Valdísi Þóru á þessu tímabili. Valdís Þóra er í 57. sæti þegar keppni er hálfnuð í Kenía. Hún er á sex höggum yfir pari samtals (76-74) en niðurskurðurinn var við sjö högg yfir pari. Valdís hefur komist í gegnum niðurskurðinn á 9 mótum af alls 16. Besti árangur hennar á þessu tímabili er fimmta sætið. Valdís Þóra er sem stendur í 71. sæti stigalista LET Evrópumótaraðarinnar. Hún er í harðri baráttu um að halda keppnisrétti sínum á mótaröðinni en 70 efstu sætin tryggja öruggt sæti á LET Evrópumótaröðinni á næsta tímabili. Lokamótið eru því mikilvæg fyrir Valdísi Þóru hvað stöðu hennar á stigalistanum varðar.
Golf Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira