Lífið

Þriðja barn Hannesar og Höllu komið í heiminn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Halla og Hannes í brúðkaupi Gylfa Sigurðssonar og Alexöndru Helgu á Ítalíu síðasta sumar. 
Halla og Hannes í brúðkaupi Gylfa Sigurðssonar og Alexöndru Helgu á Ítalíu síðasta sumar. 

Hjónin Hannes Þór Halldórsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, og Halla Jónsdóttir eignuðust sitt þriðja barn á dögunum.

Hannes greinir frá því á Instagram og segir: „Hildur Anna Hannesdóttir, nýjasti fjölskyldumeðlimurinn með stoltum stóru systkinum.“

Fyrir áttu þau tvö börn, dreng og stúlku, og er Hildur því þriðja barn þeirra hjóna.

Hannes Þór leikur í dag með Val í Pepsi-Max deild karla og hefur staðið í rammanum hjá íslenska landsliðinu síðustu ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.