Allt að fjórtán stiga hiti um helgina Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 15. maí 2020 06:59 Samkvæmt veðurspánni á að vera tiltölulega sólríkt á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Vísir/Vilhelm
Veðurstofan spáir allt að fjórtán stiga hita á Vesturlandi á sunnudag en kaldara verður á Norður- og Austurlandi um helgina. Í dag er spáð norðanátt, víða átta til þrettán metrum á sekúndu en sums staðar verður hvassara í vindstrengjum við fjöll, einkum austantil á landinu, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands: „Dálítil él um norðaustanvert landið og þykknar upp með deginum norðvestanlands en þar hangir hann þurr. Hiti 0 til 5 stig. Á sunnanverðu landinu léttir til með morgninum en stöku skúrir á Suðausturlandi í kvöld. Hiti 6 til 10 stigum yfir daginn, sem er ekki ýkja hlýtt en þar sem skjólsælt er og sólar nýtur verður fínasta veður fyrir útiveru.“ Í textaspánni er síðan getið um eilítið meiri hita sunnan heiða á morgun þar sem verður léttskýjað og sjö til þrettán stiga hiti og á sunnudag er spáð hita frá tveimur stigum austast og upp í fjórtán stig á Vesturlandi. Veðurhorfur á landinu: Norðlæg átt 8-15 m/s, hvassast austast á landinu. Léttir til með morgninum um sunnanvert landið, en stöku skúrir á Suðausturlandi í kvöld. Lengst af skýjað norðanlands og dálítil él á norðaustantil. Hiti 1 til 10 stig að deginum, hlýjast syðst. Norðan 8-15 á morgun og stöku slydduél eða skúrir, en léttskýjað á sunnanverðu landinu og hlýnar lítið eitt. Á laugardag: Norðlæg átt, víða 5-10 m/s en norðvestan 10-15 m/s austantil á landinu. Dálitil él og síðar skúrir á Norður- og Austurlandi og hiti 0 til 5 stig. Léttskýjað sunnan heiða með hita 7 til 13 stig að deginum. Á sunnudag: Austan 5-10, en 10-15 með suðurströndinni. Bjart með köflum, en skýjað um austanvert landið og lítilsháttar él. Hiti frá 2 stigum austast, upp í 14 stig á Vesturlandi að deginum. Á mánudag: Suðaustan 3-10 og víða léttskýjað, en 10-15, skýjað og úrkomulítið syðst á landinu. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast á Norður- og Vesturlandi. Á þriðjudag: Austlæg átt 8-13 og dálítil rigning sunnan- og austantil, en hægari vindur og skýjað með köflum um landið norðvestanvert. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast vestanlands.
Veður Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira