Snjókoma norðan og austanlands og gular hríðarviðvaranir í gildi Atli Ísleifsson skrifar 11. mars 2020 07:20 Spákortið klukkan 11 í dag, eins og það lítur út klukkan 7 í morgun. Veðurstofan
Veðurstofan spáir norðaustan 13 til 23 metrum í sekúndu í dag þar sem hvassast verður norðvestantil og undir Vatnajökli eftir hádegi. Útlit er fyrir talsverðri snjókomu norðan og austanlands fram eftir degi, en það eru gular hríðarviðvaranir í gildi fram á kvöld á þeim slóðum. – á Ströndum og Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi og á Austfjörðum. „Það verður þurrt að mestu um landið suðvestanvert, og hitinn verður yfirleitt nálægt frostmarki. Það dregur úr vindi og ofankomu í kvöld og kólnar í veðri. Víða norðaustan 5-13 m/s í fyrramálið, dálítil él norðaustanlands, annars úrkomulítið. Gengur í suðaustan 10-18 með snjókomu eða slyddu suðvestan- og vestantil síðdegis. Frost 1 til 12 stig, kaldast í innsveitum norðanlands, en frostlaust við suðvesturströndina um kvöldið,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Norðaustanátt, víða 5-13 m/s og dálítill éljagangur norðaustanlands. Gengur í suðaustan 10-18 m/s með snjókomu eða slyddu suðvestan- og vestantil síðdegis. Frost 1 til 12 stig, kaldast í innsveitum norðanlands, en frostlaust við suðvesturströndina um kvöldið. Á föstudag: Suðlæg átt, víða 8-15, en gengur í norðan 10-18 vestantil. Snjókoma með köflum í öllum landshlutum, en slydda við suðurströndina eftir hádegi. Frost 0 til 8 stig, en frostlaust við suðurströndina yfir daginn. Á laugardag: Norðaustan 8-15, él á norðan og austanverðu landinu en bjartviðri sunnan- og vestanlands. Herðir á frosti. Á sunnudag: Gengur í sunnan 10-18 og þykknar upp með snjókomu vestantil, en styttir upp norðaustanlands. Dregur úr frosti. Á mánudag: Hvöss suðaustanátt með snjókomu eða rigningu og hlýnandi veðri. Snýst í suðvestanátt með éljum og kólnar aftur síðdegis. Á þriðjudag: Útlit fyrir suðvestanátt með éljagangi um landið sunnan- og vestanvert, en þurrviðri norðaustanlands.
Veður Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fleiri fréttir „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Sjá meira