Lífið

Sigrún er með húðflúr á hálsi, höku og enni en lætur andlitið líklega í friði í bili

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sigrún segist vera með húðflúr á fimmtíu til sextíu prósent líkamans. 
Sigrún segist vera með húðflúr á fimmtíu til sextíu prósent líkamans. 

Húðflúr í ótrúlegustu myndum og á ótrúlegustu stöðum á líkamanum hafa verið vinsæl að undanförnu.

Fyrir ekki svo löngu skoðaði Vala Matt svokölluð „body suit tattú“ í Íslandi í dag þar sem allur líkaminn er þakinn tattúverkum og þar voru hjónin Rúnar og Eyrún mjög áberandi og sýndu sín ævintýralegu húðflúr um allan líkamann.

Valgerður Matthíasdóttir fór að þessu sinni og hitti húðflúr listamennina og hjónin Sigrúnu Rós Sigurðardóttur og Ingólf Pálma Heimisson hjá Bleksmiðjunni og fékk að sjá andlitshúðflúr þeirra hjóna.

Þau hjónin eru bæði með fjölmörg húðflúr. 

Einnig skoðaði Vala meðal annars skemmtilegt plöntusafn Sigrúnar sem er yfir 130 plöntur á 130 fermetrum.

Mælir ekki með fyrir alla

„Ég hugsa að ég sé með svona fimmtíu til sextíu prósent líkamans húðflúraðann. Það kæmi mér ekki á óvart ef ég endaði öll með húðflúr en ég ætla sleppa andlitinu, eða mestmegnis,“ segir Sigrún sem er með húðflúr á hálsinu, upp á höku og á enninu.

„Ég mæli kannski ekki með fyrir alla að fá sér svona mikið sýnileg flúr en ef þú ert í vinnu sem leyfir það og stefnir ekkert annað þá mæli ég með þessu.“

Eins og áður segir er Sigrún með fallegt húðflúr á enninu.

„Ég var búin að hugsa um þetta í svolítinn tíma og þetta er auðvitað nálægt mér, þetta er bara hérna í vinnunni. Ég er bara mjög sátt við þessa ákvörðun og tek í raun ekkert eftir þessu lengur. Móður minni brá svolítið þegar ég fékk með flúr á hálsinn en svo þegar ég kom heim með þetta á enninu þá sagði hún að það færi mér bara vel. Hún er búin að venjast með, en fyrsta tattúið sem ég fékk mér, þá fór hún bara að gráta.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.