Kante mátti sleppa restinni af tímabilinu en er mættur til æfinga Sindri Sverrisson skrifar 9. júní 2020 18:00 N'Golo Kanté gæti leikið með Chelsea þegar liðið byrjar að spila á ný eftir tólf daga, en Chelsea er í harðri baráttu við Manchester United um 4. sæti. VÍSIR/GETTY
Heimsmeistarinn N‘Golo Kante hefur verið tvístígandi varðandi það að snúa aftur til æfinga hjá Chelsea eftir hléið í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, af ótta við að smitast af kórónuveirunni. Hann er nú byrjaður að æfa með liðinu. Kante hafði fengið leyfi til að æfa heima hjá sér og kvaðst tilbúinn að missa af því sem eftir væri af leiktíðinni, vegna ótta við veiruna. Samkvæmt Sky Sports naut hann fyllsta stuðnings knattspyrnustjórans Frank Lampard, sem og stjórnar Chelsea. Kante mætti hins vegar aftur til æfinga með liðsfélögum sínum í dag, nú þegar æfingar eru með hefðbundnu sniði og snertingar leyfðar, og gæti því spilað með Chelsea þegar liðið sækir Aston Villa heim í fyrsta leik eftir hléið, þann 21. júní. Chelsea er í 4. sæti deildarinnar, þremur stigum á undan Manchester United, þegar níu umferðir eru eftir, í harðri baráttu um sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.
Enski boltinn Tengdar fréttir Kante æfði ekki með Chelsea í dag af ótta við veiruna Það var enginn N’Golo Kante sjáanlegur á æfingu Chelsea í dag og Matt Law, blaðamaður á The Telegraph, segir að það eigi sér eðlilega skýringu. Hann hafi fengið frí frá æfingu dagsins og óvíst hvenær hann æfir aftur með liðinu. 20. maí 2020 20:14 Mest lesið Harma rasíska og transfóbíska grein liðsfélaga Sveindísar Fótbolti Alfreð hissa: Veit að Íslendingar geta mun betur Handbolti Gjöf frá mömmu vatt rækilega upp á sig Sport Segir sönginn um Jota á tuttugustu mínútu hafa áhrif á leik Liverpool Enski boltinn „Fannst þetta verða svartara og svartara“ Handbolti Haaland fór sem Jókerinn að versla bleyjur Enski boltinn Arne Slot: „Þetta er síðasta spurningin sem ég átti von á“ Enski boltinn Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Körfubolti Liverpool féll síðast þegar liðið tapaði fimm í röð Enski boltinn „Ég er ekki Schmeichel í dulargervi“ Enski boltinn Fleiri fréttir Burnley - Arsenal | Toppliðið sækir nýliðana heim Nott. Forest - Man. United | Tekst United að vinna fjórða leikinn í röð? Andri Lucas var kóngurinn á King Power í dag Liverpool féll síðast þegar liðið tapaði fimm í röð „Ég er ekki Schmeichel í dulargervi“ Arne Slot: „Þetta er síðasta spurningin sem ég átti von á“ Segir sönginn um Jota á tuttugustu mínútu hafa áhrif á leik Liverpool Haaland fór sem Jókerinn að versla bleyjur Fullkomin þrenna kom Lampard úr sjöunda himni Jóladagskráin klár: Hefðin brotin og aðeins einn leikur annan í jólum Sjáðu besta liðið í föstum leikatriðum leika listir sínar Barcelona skuldar mest en Tottenham er númer tvö Mikilvægt fyrir United að hamra járnið meðan það er heitt Félagið í greiðslustöðvun en borgaði öll laun degi fyrr Skortir Liverpool breidd þrátt fyrir gríðarleg fjárútlát síðasta sumar? Hetja Englands á EM sleit krossband Lofar frekari fjárfestingum Fantasýn: „Þessi vörn er eitthvað skrímsli“ Scholes hættir og setur einhverfan son sinn í fyrsta sætið Carrick í einkaviðtali: Sigurinn á Anfield stór stund fyrir Man. Utd Hefur spilað 16 mínútur og fengið tvö rauð spjöld Slot: Engin auka pressa við þetta tap Vísar slúðrinu til föðurhúsanna Palace neitar að sleppa takinu á Liverpool Arteta fyrstur stjóranna á fætur Litu á hann sem risaeðlu en sjáið hvað er í tísku núna Búið að finna leiðina til að pirra og vinna Liverpool Arteta óttast ekki að keppinautarnir steli undrabarninu frá honum Hákon Rafn hélt hreinu þegar Brentford flaug áfram Segir að Slot verði að taka tvo leikmenn út úr Liverpool-liðinu Sjá meira
Kante æfði ekki með Chelsea í dag af ótta við veiruna Það var enginn N’Golo Kante sjáanlegur á æfingu Chelsea í dag og Matt Law, blaðamaður á The Telegraph, segir að það eigi sér eðlilega skýringu. Hann hafi fengið frí frá æfingu dagsins og óvíst hvenær hann æfir aftur með liðinu. 20. maí 2020 20:14