Lífið

Svaf úti í garði í rauðri viðvörun í tíu daga í Covid

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Vala fyrir utan tjaldið sitt
Vala fyrir utan tjaldið sitt Mynd/LífsKraftur

Hólmfríður Vala Svavarsdóttir, betur þekkt sem Vala, er ein af þeim konum sem nú þvera Vatnajökul. Þær safna fyrir Kraft og Líf ásamt því að hvetja fólk til útivistar og hreyfingar. Vala er búsett á Ísafirði og náði því ekki að æfa mikið með Lífskraftshópnum, en hún dó ekki ráðalaus.

„Ég hef góða aðstöðu og góða félaga fyrir vestan til að æfa með,“ segir Vala um undirbúninginn fyrir ferðina yfir Vatnajökul. Hún ætlaði svo að koma til Reykjavíkur til þess að tengjast hópnum betur, en svo var veturinn erfiður veðurlega séð og Covid tók svo við.

„Þetta fór ekkert alveg eins og ég planaði en ég tók bara mínar æfingar á Ísafirði. Í Covid tók ég tíu daga í tjaldi úti í garði.“

Það var þó ekki alveg eins og að vera á jökli, lofthitinn hærri og svo var hægt að fara inn í heita sturtu eftir kalda nótt í garðinum. Þetta var þó mikilvægur þáttur í að prófa búnaðinn og æfa það að tjalda og pakka tjaldinu saman, sem þær hafa gert á hverri nóttu á jöklinum.

„Á hverjum morgni þurfti ég að berja snjóinn af því það snjóaði mjög mikið. Á hverjum degi var eiginlega rauð viðvörun.“

Hópurinn á Vatnajökli í gærMynd/LífsKraftur

Hópurinn er á fullri ferð og á í kringum 25 kílómetra eftir af 150 kílómetra ferðalagi. Hulda Bjarnadóttir ræddi við Völu áður en hún lagði af stað. Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.

Enn er hægt er að styðja við Lífskraft með því að senda SMS í símanúmerið 1900

Sendið textann LIF1000 fyrir 1.000 kr.

Sendið textann LIF3000 fyrir 3.000 kr.

Sendið textann LIF5000 fyrir 5.000 kr.

Sendið textann LIF10000 fyrir 10.000 kr.

Einnig er að styðja við Lífskraft með því að leggja inn á reikning 1161-26-9900, kt. 501219-0290, eða með AUR appinu í síma 789 4010.

Það er ekki alltaf blessuð blíðan þegar maður þverar stærsta jökul Evrópu. Þetta myndband sýnir það þunga færi og veðrið hjá hópnum í fyrradag.


Tengdar fréttir

Algjör kuldaskræfa en þverar nú Vatnajökul

Kvennahópurinn sem nú þverar Vatnajökul er nú á sjöunda degi leiðangursins. Það var þungt færi hjá hópnum í gær, blöðrur og blautir fætur og kalt. Þrátt fyrir lélegt skyggni, birti þó til um miðjan dag og Snjódrífurnar gengu beint í austur átt.

Hópurinn ekki sterkari en veikasti hlekkurinn

Snemma á sunnudag fór hópur kvenna af stað upp á Vatnajökul en þær ætla að þvera jökulinn á tíu dögum fyrir góð málefni. Snjódrífan Brynhildur Ólafsdóttir er fararstjóri leiðangursins ásamt Vilborgu Örnu Gissurardóttur pól- og Everestfara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.