Tónlist

Björk heldur þrenna tónleika í Eldborgarsal Hörpu í ágúst

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Björk Guðmundsdóttir á sviði í Stokkhólmi.
Björk Guðmundsdóttir á sviði í Stokkhólmi. Getty/Santiago Felipe

Söngkonan Björk Guðmundsdóttir tilkynnti á Facebook síðu sinni um helgina að hún ætlaði að bjóða Íslendingum á tónleika. Á tónleikunum ætlar hún að halda upp á alla íslensku tónlistarmennina sem hún hefur unnið með í gegnum tíðina, samtals yfir hundrað einstaklingar. Tónleikarnir verða „unplugged“ eða án slagverks og eletróníku.

„Mitt innleg til feminisma verður að monta mig yfir því að langflestar útsetningarnar eru eftir mig þetta er því miður eitthvað sem er of oft horft framhjá hjá konum.“

Björk mun halda þrenna eftirmiðdagstónleika í Eldborgarsal Hörpu í ágúst í samstarfi við Iceland Airwaves. Tónleikarnir hafa allir sína sérstöðu og ólíka dagskrá. Samhliða tónleikunum fer fram söfnun til styrktar Kvennaathvarfinu og boðið verður líka upp á veitingar til styrktar Kvennaathvarfsins eftir tónleikana.

„mig langar til að fagna því sem við höfum hér á íslandi , án umgjarðar . þakka öllu þessu ótrúlegu tónlistarfólki og tónlistarhöll sem við eigum. vírusinn hefur kennt okkur öllum að við höfum nóg . og að við verðum að hjálpa til þar sem við getum . og @blacklivesmatter hefur minnt okkur harkalega á að líta í eiginn barm hvað varðar rasisma og virðingu , skilning og meiri aðstoð við flóttamenn sem koma hingað.“

Á þessum viðburðum munu koma fram með Björk um það bil 100 íslenskir tónlistarmenn. Þetta er hátíð þar sem Björk heldur upp á samstarf sitt við tónlistarfólk frá Íslandi, sem starfað hefur með henni í hljóðverum og á tónleikum út um allan heim. Hér er sömuleiðis verið að halda uppá að Ísland sé opið á ný eftir COVID-19 faraldurinn. Tónleikarnir munu fara fram með áheyrendum dagana 9., 15. og 23. ágúst.

Björk mun flytja eigin tónsmíðar og útsetningar í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands, Hamrahlíðarkórinn, flautuseptetinn Viibra og fleiri gestum. Stjórnandi verður Bjarni Frímann. Almenn sala á öllum þremur tónleikum hefst föstudaginn 3. júlí kl. 10 en nánari upplýsingar má finna á vef Hörpu

Hér fyrir neðan má lesa tilkynningu söngkonunnar í heild sinni.

kæru íslendingar

mig langar til að bjóða ykkur upp á tónleika

mig langar til að fagna þess að við erum komin út úr alla vega fyrsta stigi kórónu-faraldursins og halda upp á hversu mörgum íslenskum tónlistarmönnum ég hef unnið með í gegnum tíðina

ég tók næstum allar plöturnar mínar með hljóðfæraleikurum héðanfrá

homogenic með íslenskum strengjaoktett medúllu með schola cantorum , íslenskum blönduðum kór

voltu með 10 brass-stelpum sem ég fann um allt land og þær síðan formuðu wonderbrass bíófílíu með langholtskirkju kvennakór graduale nobili

vúlnikúru með 15 manna strengjasveit útópíu með 12 flautuleikurum sem síðan stofnuðu flautuseptettinn viibra

kornukópíu með hamrahlíðarkór stjórnuðum af þorgerði ingólfsdóttur svo spiluðum við öll á tónleikum þvers og kurs um kringum hnöttinn

samtals eru þetta yfir hundrað manns !!

mig langar til að halda helgar tónleika í hörpu í ágúst þeir verða "unplugged" eða án slagverks og eletróníku

með sinfóníu hljómsveit íslands og fleiri gestum

mitt innleg til feminisma verður að monta mig yfir því að langflestar útsetningarnar eru eftir mig þetta er því miður eitthvað sem er of oft horft framhjá hjá konum

fyrirgefið að troða þessu inn eða ekki ... ?

tónleikarnir verða klukkan 5 og fólki boðið upp á veitingar eftir tónleikana til styrktar kvennaathvarfsins

mig langar til að fagna því sem við höfum hér á íslandi , án umgjarðar . þakka öllu þessu ótrúlegu tónlistarfólki og tónlistarhöll sem við eigum . vírusinn hefur kennt okkur öllum að við höfum nóg . og að við verðum að hjálpa til þar sem við getum . og @blacklivesmatter hefur minnt okkur harkalega á að líta í eiginn barm hvað varðar rasisma og virðingu , skilning og meiri aðstoð við flóttamenn sem koma hingað

ég hlakka til að sjá ykkur

mikil ást

birkið





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.