Tuttugu stig í kortunum í dag Stefán Ó. Jónsson skrifar 2. júlí 2020 06:44 Hitakort dagsins er víða rautt og jafnvel fjólublátt. Veðurstofa íslands
Íbúar og gestir suðvesturhornsins og Vesturlands mega búa sig undir allt að 20 stiga hita í dag. Þó gæti vottað fyrir þokulofti við sjávarsíðuna, ekki síst austantil, þar sem hitinn verður á bilinu 6 til 11 gráður. Heilt yfir verður hægur vindur á landinu, víða á bilinu 3 til 8 m/s og léttskýjað. Samkvæmt spákortum Veðurstofunnar snýr vindur sér til suðausturs undir kvöld og þykknar heldur upp um sunnanvert landið með stöku skúrum, en áfram bjart með köflum norðanlands. Það megi svo búast við austanátt á morgun og gæti vindhraði náð 13 m/s við suðurströndina. Það þykknar upp, verður að mestu skýjað og má gera ráð fyrir rigningu víða. Veðurstofan segir að Norðurland megi þó búast við bjartviðri á morgun. Hitinn verður á bilinu 11 til 18 stig og verður hlýjast á norðausturhorninu. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Austan 3-8 m/s, en 8-13 við suðurströndina. Víða bjartviðri á norðanverðu landinu, en skýjað með köflum sunnantil og stöku skúrir. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast í innsveitum á Norður- og Vesturlandi. Á laugardag: Austan og norðaustan 5-13. Bjart með köflum, yfirleitt þurrt og hiti 10 til 16 stig, en skýjað austantil og heldur svalara. Á sunnudag: Norðan 3-10 m/s. Víða bjartviðri og stöku skúrir síðdegis, hiti 11 til 16 stig. Skýjað um landið norðaustanvert og hiti 5 til 10 stig. Á mánudag: Norðvestan 5-10, dálítil rigning og hiti 5 til 10 stig. Skýjað og úrkomulítið um sunnan- og vestantil á landinu og hiti 10 til 16 stig yfir daginn. Á þriðjudag og miðvikudag: Útlit fyrir norðlæga átt. Bjart með köflum og stöku skúrir síðdegis. Hiti 10 til 16 stig yfir daginn. Að mestu skýjað á Norður- og Austurlandi og heldur svalara.
Veður Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Sjá meira