Krefjast afsagnar ríkisstjórnar Búlgaríu vegna spillingarmála Kjartan Kjartansson skrifar 15. júlí 2020 14:50 Frá mótmælum gegn ríkisstjórn Búlgaríu í höfuðborginni Sofíu í gær, 14. júlí 2020. Vísir/EPA
Forsætisráðherra Búlgaríu segist ætla að ákveða hvort hann haldi áfram í embætti síðar í þessari viku. Stjórnarandstaðan hefur lagt fram vantrauststillögu á hendur ríkisstjórninni í skugga mótmæla gegn spillingu sem geisa víða um landið. Þúsundir Búlgara hafa krafist afsagnar Boyko Borissov forsætisráðherra, ríkisstjórnar hans og ríkissaksóknara vegna fjölda fjármálaspillingarmála hátt settra embættismanna sem hafa auðgað valdamikla auðjöfra á kostnað opinberra stofnana, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Borissov, sem hefur verið við völd nær sleitulaust frá 2009, segist ætla að ákveða hvort hann sitji áfram eftir að hann snýr aftur heim eftir leiðtogafund Evrópusambandsins síðar í vikunni. Hann varar við því að Búlgaría þurfi að búa sig undir afleiðingar efnahagskreppu vegna kórónuveiruheimsfaraldursins. Litlar líkur eru taldar á því að vantrauststillaga sem stærsti stjórnarandstöðuflokkur landsins hefur lagt fram á þingi verði samþykkt. Greidd verða atkvæði um hana í næstu viku. Þetta er fimmta vantrauststillagan á hendur miðhægristjórnar Borissov. Búlgaríu er fátækasta aðildarríki Evrópusambandsins og er talið það spilltasta. Enginn háttsettur embættismaður hefur þó verið fangelsaður fyrir spillingu. Frekari mótmæli gegn spillingu hafa verið boðuð í dag.
Búlgaría Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Sjá meira