Viðurkenndi öðru sinni að hafa myrt ríkisstjórann Andri Eysteinsson skrifar 5. ágúst 2020 15:16 Réttað er yfir Stephan Ernst í Frankfurt í sambandsríkinu Hesse. Getty/Kai Pfaffenbach
Öfgamaðurinn Stephan Ernst hefur viðurkennt öðru sinni en nú frammi fyrir dómara í Frankfurt að hafa myrt stjórnmálamanninn Walter Lübcke, fyrrverandi ríkisstjóra þýska sambandsríkisins Hesse. Walter Lübcke fannst látinn í byrjun júní 2019 og hafði þá verið skotinn í höfuðið af stuttu færi. Þrettán dögum eftir dauða Lübcke var hægri-öfgamaðurinn Stephan Ernst handtekin, grunaður um verknaðinn. Lübcke var flokksbróðir Merkel Þýskalandskanslara og hafði löngum talað fyrir réttindum innflytjenda og hælisleitenda. Voru skoðanir hans óvinsælar í ýmsum kreðsum öfgamanna og bárust honum reglulega líflátshótanir. Talið er að Stephan Ernst hafi ásamt félaga sínum Markus H, sem einnig er ákærður í málinu, mætt á fjöldafund þar sem Lübcke var á meðal ræðumanna. Eftir fundinn hafi Ernst leitast eftir því að myrða stjórnmálamanninn. Í dómsal í dag viðurkenndi Ernst að hafa skotið Lübcke til bana við heimili ríkisstjórans og sagðist hann sjá eftir því að hafa látið skoðanir sínar stýra sér með þessum hætti. „Enginn ætti að deyja af því að skoðanir hans eru á öndverðum meiði,“ sagði Ernst sem einnig hefur verið ákærður fyrir morðtilraun eftir að hafa stungið írakskan hælisleitanda árið 2016. Ernst sagði Markus H, sem kenndi honum að beita skotvopni, hafa tekið þátt í verknaðinum en ekki er talið að Markus H hafi verið viðstaddur glæpinn. Ernst hafði áður játað sök sína en dró játninguna að endingu til baka.
Þýskaland Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira