Reyna að hefta útbreiðslu olíu eftir stórfelldan leka Atli Ísleifsson skrifar 9. ágúst 2020 13:08 Skipið, MV Wakashio, strandaði á kóralrifi í Indlandshafi þann 25. júlí síðastliðinn og síðan hafa mörg tonn af olíu lekið úr skipinu. AP
Sjálfboðaliðar á Máritíus gera nú allt til að reyna að hefta útbreiðslu olíu í sjónum eftir stórfelldan leka úr japönsku flutningaskipi sem strandaði undan strönd landsins í síðasta mánuði. Skipið, MV Wakashio, strandaði á kóralrifi í Indlandshafi þann 25. júlí síðastliðinn og síðan hafa mörg tonn af olíu lekið úr skipinu. Stórbritin kóralrif er að finna undan ströndum Máritíusar og ferðast margir til landsins gagngert til að kafa, en ferðaþjónusta er ein mikilvægasta atvinnugrein landsins. Margir hafa lýst yfir miklum áhyggjum af þeim áhrifum sem olíulekinn kann að hafa á vistkerfið á svæðinu. Mikið magn olíu hefur skolað á land.AP Sjálfboðaliðar vinna hörðum höndum að því að hreinsa strandirnar þar sem olíunni hefur skolað á land og hafa þeir meðan annars komið fyrir stráum og öðrum gróðri í sjónum í þeim tilgangi að það drekki í sig olíuna. Forstjóri japanska skipafélagsins Mitsui OSK Lines, sem gerir út MV Wakashio, baðst í morgun afsökunar á slysinu. Áætlað er að þúsund tonn af olíu hið minnsta hafi lekið úr skipinu. Búið er að ná 500 tonnum af olíu úr skipinu en áætlað er að um 2.500 tonn sé þar enn að finna.
Umhverfismál Máritíus Mest lesið „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Vegfarendur hvattir til að fylgjast með viðvörunum Veður Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „One love“ til allra í kommentakerfinu Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Fleiri fréttir Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Sjá meira