Rok, rigning, él og gular viðvaranir Atli Ísleifsson skrifar 22. janúar 2020 07:44 Það snýst í suðvestan 15-23 m/s síðdegis með éljum og kólnandi veðri, en rofar til um landið austanvert. veðurstofan
Landsmenn mega von á bæði mikilli rigningu og úrkomu víðs vegar um land í dag. Spáð er sunnan 15 til 23 metrum á sekúndu með talsverðri rigningu fram eftir degi, en úrkomuminna norðaustanlands. Mjög hlýtt er á á landinu og er búist við hita allt að 13 stigum norðaustanlands. Gular viðvaranir taka gildi víðs vegar um land í kvöld og fram á annað kvöld – Á Vestfjörðum, Breiðafirði, Faxaflóa, Ströndum og Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra og á hálendinu. „Það snýst í suðvestan 15-23 m/s síðdegis með éljum og kólnandi veðri, en rofar til um landið austanvert. Á morgun verður svo áframhaldandi suðvestanátt og éljagangur um landið sunnan- og vestanvert, en bjartviðri fyrir austan. Frost víða 0 til 5 stig. Það bætir í vind norðvestan- og vestanlands í kvöld, þá ganga gular hríðarviðvaranir í gildi í tilheyrandi landshlutum og gilda þær fram eftir degi á morgun,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Suðvestan og vestan 15-23 m/s, en 18-25 NV-til framan af degi. Éljagangur, en yfirleitt léttskýjað austantil á landinu. Frost 0 til 5 stig. Á föstudag: Suðvestlæg átt, 5-13 m/s og él, en þurrt austanlands. Vægt frost. Vaxandi austlæg átt sunnantil um kvöldið með snjókomu og hægt hlýnandi veðri. Á laugardag: Hvöss austlæg átt, slydda eða rigning með suðurströndinni en annars snjókoma. Hiti 0 til 4 stig syðst, en annars vægt frost. Á sunnudag: Suðlæg eða breytileg átt með snjókomu eða éljum víða. Kólnandi veður. Á mánudag og þriðjudag: Líkur á norðlægri átt með snjókomu norðanlands, en bjartviðri syðra. Kalt í veðri.
Veður Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fleiri fréttir „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Sjá meira