Lífið

Sannleikann eða drekktu með klámstjörnum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Robby Echo og Addie Andrews tóku þátt.
Robby Echo og Addie Andrews tóku þátt.

Á YouTube-síðunni CUT má sjá skemmtilegt myndband þar klámstjörnur hittast og fara í leikinn fræga Sannleikann eða kontór.

Nema að þessu sinni áttu þau annaðhvort að segja sannleikann eða drekka sopa af áfengum drykk.

Spurningarnar eru margar hverjar mjög óþægilegar og tóku þau Robby Echo og Addie Andrews þátt.

Bæði starfa þau í klámbransanum en eru einnig herbergisfélagar og búa því saman. Þau hafa aldrei áður unnið saman en viðurkenndu að hafa stundað kynlíf saman.

Hér að neðan má sjá hvernig þetta gekk fyrir sig.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.