Allt að ellefu stiga hiti á morgun Kristín Ólafsdóttir skrifar 4. febrúar 2020 06:52 Hitinn eins og hann lítur út klukkan tvö á morgun. Skjáskot/veðurstofa íslands
Ört hlýnar í veðri næstu daga og gera má ráð fyrir rigningu víða á landinu. Þá gæti hiti farið upp í 11 stig á morgun. Búast má við vaxandi sunnanátt í dag, 8-15 m/s síðdegis með slyddu eða rigningu. Hægari vindur og þurrt norðaustantil fram á kvöld. Víða verður töluvert frost í morgunsárið, einkum fyrir norðan, en það hlýnar ört í dag og hitinn verður á bilinu 1 til 7 stig seint í kvöld. Á morgun verður svo keimlíkt veður, sunnan og suðvestan 10-18 m/s og rigning eða súld, en úrkomuminna norðaustanlands. Hlýtt verður í veðri, hiti víða 4 til 11 stig. „[…] hlýjast þar sem hnúkaþeyr nær sér niður á Norður- og Austurlandi. Staðan verður svipuð framan af fimmtudeginum, en síðdegis snýst svo í suðvestanátt með kólnandi veðri,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Suðlæg átt, víða 10-15 m/s og súld eða rigning, en úrkomuminna NA-lands. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast fyrir norðan. Á fimmtudag: S og SV 13-20 m/s og súld eða rigning S- og V-lands, en þurrt að kalla NA-til. Hiti breytist lítið. Dregur úr vindi og úrkomu síðdegis með kólnandi veðri. Á föstudag: Gengur í hvassa suðaustanátt, með vætusömu og mildu veðri, en úrkomulítið norðanlands. Á laugardag: Sunnanátt og víða snjókoma eða él, en þurrt að mestu fyrir norðan. Hiti kringum frostmark. Á sunnudag og mánudag: Útlit fyrir vestlæga eða breytilega átt með ofankomu víða, og heldur kólnandi veðri.
Veður Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Fleiri fréttir Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Sjá meira