Zlatan í bann vegna níu ára gamals brots | Ronaldo tryggði Juve jafntefli Sindri Sverrisson skrifar 13. febrúar 2020 21:46 Zlatan Ibrahimovic rökræðir við dómarann á San Siro í kvöld. vísir/epa
Cristiano Ronaldo tryggði Juventus 1-1 jafntefli gegn AC Milan í Mílanó í kvöld. Milan verður án lykilmanna þegar liðin mætast í seinni leik sínum í Tórínó í undanúrslitum ítölsku bikarkeppninnar í fótbolta. Ante Rebic kom Milan yfir í fyrri leik liðanna í kvöld eftir klukkutíma leik. Þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka fékk Theo Hernández sitt annað gula spjald og þar með rautt. Juventus tókst að nýta sér liðsmuninn þegar Ronaldo nældi í vítaspyrnu undir lokin og jafnaði metin með því að skora úr henni. Liðin mætast aftur 4. mars en þá verða bæði Hernández og Zlatan Ibrahimovic í banni hjá Milan. Ibrahimovic fékk gult spjald í kvöld og hefur þar með safnað þremur áminningum í ítalska bikarnum. Reglurnar í keppninni eru þannig að áminningar þurrkast ekki út eftir hverja leiktíð, en Zlatan hafði fengið áminningu í bikarleik gegn Torino í síðasta mánuði og aðra áminningu í undanúrslitum keppninnar árið 2011! Í millitíðinni spilaði Svíinn með PSG í Frakklandi, Manchester United á Englandi og LA Galaxy í Bandaríkjunum, en það skiptir engu máli samkvæmt reglunum í ítalska bikarnum. Milan verður einnig án Samu Castillejo í seinni leiknum, en hann fékk gult spjald í kvöld.
Ítalski boltinn Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Keflavík - Valur | Hörð barátta um efri hlutann Íslenski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Fleiri fréttir Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Keflavík - Valur | Hörð barátta um efri hlutann Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Sjá meira