Valdís Þóra í góðum málum í Ástralíu | Guðrún Brá átti erfitt uppdráttar Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 27. febrúar 2020 13:30 Valdís Þóra lék vel á fyrsta hring í Ástralíu. Vísir/Getty
Kylfingarnir Valdís Þóra Jónsdóttir og Guðrún Brá Björgvinsdóttir hófu leik á Women´s NSW Open mótinu í nótt en mótið fer fram á Dubbo golfvellinum í Ástralíu. Þó leikið sé í Ástralíu er mótið hluti af Evrópumótaröð kvenna. Valdís Þóra hóf daginn þó frekar illa og var tveimur höggum yfir pari þegar fimm holum var lokið. Hún fór svo 8. og 9. holu vallarins báðar á fugli og náði þar með að koma sér á par. Lauk hún svo fyrsta hring á endanum á pari vallarins eða á samtals 72 höggum. Er Valdís sem stendur í 21. sæti, fimm höggum á eftir Michele Thomson sem leiðir mótið. Guðrún Brá hóf mótið einkar illa og fékk fimm skolla á fyrstu níu holum sínum. Henni gekk aðeins betur á seinni hluta fyrsta hrings en þessir fimm skollar sáu til þess að hún lauk hringnum á 77 höggum eða fimm höggum yfir pari vallarsins. Hún er sem stendur í 102. sæti mótsins og því ólíklegt að hún komist í gegnum niðurskurð.Kylfingur.is greindi frá.
Golf Mest lesið Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira