Allt að 18 stiga hiti á Norðausturlandi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 31. ágúst 2020 06:51 Spákort Veðurstofu Íslands eins og það lítur út fyrir klukkan 15 í dag.
Það verða fremur hægir vindar á sunnan- og vestanverðu landinu í dag og óveruleg úrkoma framan af degi að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Það mun hins vegar bæta í vind austan til á landinu, einkum nyrðra, og rigna talsvert um suðaustanvert landið. Seint í dag styttir um þar að mestu en þá taka við skúrir, aðallega vestan til á landinu. Hiti verður yfirleitt á bilinu 10 til 15 stig nema á Norðausturlandi þar sem spáð er úrkomulitlu veðri og hæstum hita eða allt að 18 stigum. Á morgun stefnir í suðvestanátt með skýjuðu veðri og skúrum víða um land en bjartviðri á Norðaustur- og Austurlandi og svipuðum hita líkt og í dag. Það er síðan útlit fyrir kólnandi veður um miðja vikuna í norðlægum áttum með úrkomu norðanlands sem fellur að hluta sem slydda til fjalla. Veðurhorfur á landinu: Suðaustan 3-8 m/s, en 8-13 fram eftir degi austanlands. Talsverð rigning á Suðausturlandi, annars dálítil rigning með köflum, en víða skúrir um seinnipartinn. Hiti 10 til 15 stig. Þurrt að mestu norðaustan til og hiti að 18 stigum þar. Á þriðjudag: Sunnan 5-10 m/s um austanvert landið, en norðaustan 5-10 á Vestfjörðum seinnipartinn, annars fremur hæg vestlæg átt. Víða skúrir eða rigning, en þurrt að kalla á Austurlandi. Hiti frá 8 stigum á Vestfjörðum, upp í 16 stig norðaustan til. Á miðvikudag: Gengur í norðaustan 5-13 m/s, hvassast á Vestfjörðum. Skýjað með köflum og lítilsháttar væta hér og þar. Hiti 6 til 13 stig, hlýjast suðvestan til. Á fimmtudag: Norðan 5-13 m/s, hvassast við norðurströndina með rigningu. Austlægari átt á Suðausturlandi og fer einnig að rigna þar, en þurrt vestanlands. Hiti frá 5 stigum í innsveitum fyrir norðan, upp í 12 stig á Suðvesturlandi. Á föstudag: Dregur úr norðanáttinni en rignir norðaustanlands framan af degi með slyddu til fjalla. Þurrt og bjart sunnan heiða. Hiti 3 til 11 stig, mildast syðst á landinu. Á laugardag og sunnudag: Útlit fyrir fremur hæga vestlæga eða breytilega átt. Skýjað með köflum og lítilsháttar væta, en þurrt austan til. Svalt í veðri.
Veður Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira