„Síðan koma lægðirnar hver af annarri“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 2. september 2020 07:22 Haustveður í Reykjavík Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson
Þær eru heldur haustlegar spárnar fram á laugardagsmorgun en þá lægir víða og léttir til. „Síðan koma lægðirnar hver af annarri,“ eins og segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands enda er sá tími ársins genginn í garð þar sem lægðirnar eru tíðari og dýpri. Í dag nálgast lægð austanvert landið og vindur er því vaxandi úr norðaustri. Þá fer að rigna sunnan og vestan til seinni partinn. „Á morgun herðir enn á norðanáttinni og rignir þá fyrir norðan og austan og kólnar heldur. Má búast við slyddu eða snjókomu til fjalla annað kvöld og nótt, þ.a. færð gæti spillst á fjallvegum. Á föstudag er hann lagstur í hvassa norðvestanátt og bætir enn í úrkomu norðaustanlands,“ segir á vef Veðurstofunnar. Veðurhorfur á landinu: Hæg breytileg átt og smá skúrir, en gengur í norðaustan 8-13 m/s á Vestfjörðum. Norðan og norðaustan 8-15 m/s síðdegis, hvassast NV til og fer að rigna S og A til. Snýst í norðan og norðvestan 15-23 á morgun, hvassast SA til. Rigning N- og A-lands og slydda til fjalla um kvöldið, en annars úrkomulítið. Hiti 5 til 14 stig, hlýjast S-lands. Á fimmtudag: Gengur í norðan 13-18 m/s, en 15-20 um kvöldið. Talsverð rigning á N- og A-landi, en annars úrkomulítið. Hiti 5 til 12 stig, hlýjast syðst. Á föstudag: Norðvestan 15-23 m/s, hvassast SA til. Talsverð eða mikil rigning á NA-verðu landinu og slydda eða snjókoma til fjalla, en annars þurrt að kalla. Dregur smám saman úr vindi og léttir til S- og V-lands seinni partinn. Hiti 2 til 10 stig, svalast fyrir norðan. Á laugardag: Breytileg átt, 3-8 m/s og bjartviðri, en lítilsháttar væta við NA-ströndina. Hlýnar heldur í veðri. Á sunnudag: Gengur í allhvassa eða hvassa sunnanátt með talsverðri rigningu, en lengst af þurrt NA til. Fremur hlýtt í veðri. Á mánudag: Útlit fyrir suðvestanhvassviðri með rigningu eða skúrum, en þurrviðri eystra og kólnar í veðri.
Veður Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Fleiri fréttir Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Sjá meira