Lífið

Skaga­maður fann fyrir til­viljun gamla gítarinn sinn á haugunum

Atli Ísleifsson skrifar
Bergur var í ferð á endurvinnslustöðina Gámu á Akranesi þegar hann fann sinn gamla vin.
Bergur var í ferð á endurvinnslustöðina Gámu á Akranesi þegar hann fann sinn gamla vin. Bergur Líndal Guðnason

Skagamaðurinn Bergur Líndal Guðnason varð meira en lítið hissa þegar hann fann fyrir tilviljun gamla gítarinn sinn – sem hann hélt að væri löngu týndur og tröllum gefinn – á endurvinnslustöðinni Gámu á Akranesi í gær.

„Þetta var frekar magnað,“ segir Bergur í samtali við Vísi. „Ég mundi ekkert hvað hafði orðið um hann. Hann hefur endað á haugunum einhvern tímann. Ég komst að því að manneskjan sem henti honum á haugana nú hafði sjálf fundið gítarinn á haugunum fyrir einhverjum árum. Ég veit ekki hvernig það gerðist, en gítarinn hefur því farið einhverja hringi á haugunum áður en ég sá hann í gær.“

Aðspurður um hvernig hann hafi gert sér grein fyrir að um hans gamla gítar hafi verið að ræða segist Bergur hafa séð gamalt brot í búk gítarsins þar sem hafi verið litað ofan í með rauðum lit.Bergur Líndal Guðnason

Bergur segir að hann hafi eignast gítarinn þegar hann var sjö, átta ára – einhverjum árum fyrir aldamót. 

„Þá var hann hins vegar þegar gamall, líklega frá 1970-og eittvað. Ég spilaði allavega alltaf á hann, en svo eignaðist ég aðra og hætti að spila á þennan sirka þrettán ára. Gítarinn endaði svo bara einhvers staðar – kannski í einhverri geymslu sem svo hefur verið hreinsað út úr og gítarinn þá endað á haugunum.“

Hafði hugsað sér að fá sér aftur klassískan

Bergur segist hafa verið í vinnunni að fara ruslaferð með vinnufélaga mínum þegar hann sá glitta í gítarhaus upp úr einum gámnum. „Ég hafði verið að tala við félaga mína að ég vildi byrja spila á klassískan gítar aftur. Svo kem ég þarna, tek hann upp og segi: „Þetta er gamli gítarinn minn!““

Gítarsafn Bergs.Bergur

Rauði liturinn á búknum

Aðspurður um hvernig hann hafi gert sér grein fyrir að um hans gamla gítar hafi verið að ræða segist Bergur hafa séð gamalt brot í búk gítarsins þar sem hafi verið litað ofan í með rauðum lit. Sömuleiðis hafi gamla gítarólin hans Bergs verið á sínum stað.

Hann segist nú vera búinn að setja nýja strengi í gítarinn. En hvernig skyldi hann hljóma?

„Ummm, svona lala,“ segir Bergur og skellir upp úr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.