Lá fyrir í rúma viku eftir komuna til landsins en á að vera klár fyrir grannaslaginn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. september 2020 14:29 Zandra Jarvin hefur leikið með yngri landsliðum Svíþjóðar.
FH-ingar vonast til að sænski leikstjórnandinn Zandra Jarvin geti leikið gegn Haukum í 2. umferð Olís-deildar kvenna á laugardaginn. Hún hefur glímt við veikindi síðan hún kom til landsins. Zandra er ekki enn komin með leikheimild með FH. Að sögn Ásgeirs Jónssonar, formanns handknattleiksdeildar FH, var beðið það með þar sem ljóst var að Zandra myndi ekki ná að spila leikinn gegn Stjörnunni í 1. umferð Olís-deildarinnar á föstudaginn. FH tapaði leiknum, 29-21. „Hún hefur verið veik meira og minna frá því hún kom til landsins og lá fyrir í tíu daga. Hún kom bara á æfingu daginn fyrir fyrsta leik. Ljóst var að hún myndi ekki spila þennan fyrsta leik og þannig að við hinkruðum með þessa leikheimild og vorum ekkert að stressa okkur á því,“ sagði Ásgeir í samtali við Vísi í dag. Zandra kom til landsins um miðjan ágúst, fór beint í sóttkví og lék svo með FH á Opna Norðlenska æfingamótinu á Akureyri. Síðan veiktist hún. „Hún lá kylliflöt í einhverja tíu daga með flensu. Það er ástæðan fyrir því að hún var ekki með gegn Stjörnunni. Hún mætti á æfingu daginn fyrir Stjörnuleikinn en var eðlilega ekki hress,“ sagði Ásgeir sem á von á því að Zandra spili með FH í grannaslagnum gegn Haukum á laugardaginn. Leikurinn hefst klukkan 14:45 á Ásvöllum og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Zandra, sem er tvítug, kom til FH frá Spårvägen í Svíþjóð. Hún hefur leikið með yngri landsliðum Svía.
Olís-deild kvenna FH Tengdar fréttir Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - FH 29-21 | Öruggt hjá Garðbæingum í upphafsleiknum Stjarnan vann öruggan sigur á FH, 29-21, í fyrsta leik tímabilsins í Olís-deild kvenna. 11. september 2020 20:00 Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - FH 29-21 | Öruggt hjá Garðbæingum í upphafsleiknum Stjarnan vann öruggan sigur á FH, 29-21, í fyrsta leik tímabilsins í Olís-deild kvenna. 11. september 2020 20:00