Tónlist

Föstudagsplaylisti Kormáks Jarls

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Kormákur og Rós á góðri stund.
Kormákur og Rós á góðri stund. margrét rósa

Listasmiður vikunnar er tónspekingurinn Kormákur Jarl Gunnarsson.

Hann er hluti drungarokksveitarinnar Ryba, en fyrsta plata hennar er væntanleg á næstunni. Lagið Take You Home með sveitinni má finna á nýrri safnskífu tímaritsins Myrkfælni, sem kom út með nýjasta tölublaði ritsins fyrir um mánuði.

Þar að auki vinnur hann að eigin tónlist undir nafninu Flesh Machine, en áður sauð hann upp dansvænar rafsúpur undir nafninu Brilliantinus.

Listann segir Kormákur vera samansafn laga sem hann hefur hlustað hvað mest á frá því að hann var að læra út í Berlín og þangað til í dag.

Þar er af nógu af taka, fimm og hálfrar klukkustundar ferðalag um heim fallegrar töffaratónlistar, drungalegs skýjapopps og alls þar á milli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.