Lífið

Bubbi gefur út lagið Sól rís

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bubbi gefur út nýja plötu í mars á næsta ári.
Bubbi gefur út nýja plötu í mars á næsta ári.

Bubbi Morthens sendir í dag frá sér fyrsta lag af væntanlegri plötu. Lagið ber heitið Sól rís.

Bubbi stefnir að útgáfu ellefu laga plötu í mars á næsta ári en á plötunni eru sömu hljóðfæraleikarar og á síðustu plötu Bubba, Regnbogans stræti.

Það voru þeir Guðmundur Óskar Guðmundsson bassaleikari, Hjörtur Ingvi Jóhannsson hljómborðsleikari, Örn Eldjárn gítarleikari, Aron Steinn Ásbjarnarson saxófónleikari og Þorvaldur Þór Þorvaldsson trommari.

Bubbi ræddi lagið hjá Ívari Guðmunds á Bylgjunni í morgun. 

Hér að neðan má heyra nýja lag Bubba.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.