37 greindust innanlands og þrír nú á gjörgæslu Atli Ísleifsson skrifar 2. október 2020 11:04 Alls hafa um 2.809 manns greinst með smit á Íslandi frá upphafi faraldursins. Vísir/Vilhelm
37 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Ellefu þeirra sem greindust voru í sóttkví við greiningu, 26 ekki. Alls eru þrettán nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, þar af þrír á gjörgæslu. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is. Þrjú smit greindust á landamærum þar sem beðið er niðurstöðu mótefnamælingar í öllum tilvikum. 605 manns eru nú í einangrun, samanborið við 582 í gær. Þá eru 1.845 í sóttkví í dag, samanborið við 1.697 í gær. Af þeim 37 sem greindust innanlands í gær greindust 31 eftir að tekin voru svokölluð einkennasýni og sex við sóttkvíar- og handahófsskimun. Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 149,7 en var 145,4 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 7,1 líkt og í gær. Nú hafa 2.809 manns greinst smitaðir af kórónuveiru á Íslandi frá upphafi faraldursins. Tíu þeirra sem hafa veikst af Covid-19 eru látnir. Alls voru tekin 908 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 791 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Þá voru 212 sýni tekin við sóttkvíar- og handahófsskimun og 149 í annarri skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Innlent „Þetta er ekki alveg óvænt“ Innlent Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti Innlent Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Innlent Fleiri fréttir Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Stungan leiddi til skurðar Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Sjá meira