Lífið

Valdi að leika afturendann á asna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Örn Árnason og Ólafía Hrönn fara með hlutverk í verkinu sígilda að þessu sinni. .
Örn Árnason og Ólafía Hrönn fara með hlutverk í verkinu sígilda að þessu sinni. .

Kardemommubærinn er nú kominn á svið Þjóðleikhússins í sjötta skiptið en Íslendingar sáu hann fyrst árið 1960.

Í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi fengu áhorfendur að kynnast þessu einstaka verki Thorbjörns Egners sem einnig gerði Karíus og Baktus og Dýrin í Hálsaskógi.

Kardemommubærinn er skemmtilegur bær fullur af dýrum og litríkum íbúum. Þrennt ógnar þó friðsældinni í bænum, þrír kostulegir ræningjar, ljón og Soffía frænka.

„Ég held að það sé mjög hollt að leika hana Soffíu. Því þá finnur maður kannski þessa hlið á sér. Ég held að ég sé lítil Soffía svona dags daglega,“ segir Ólafía Hrönn Jónsdóttir leikkona sem einmitt fer með það hlutverk. 

Ólafía er reyndar varaskeifa fyrir Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur um þessar mundir, en Steinunn er fjarri góðu gamni í öðrum verkefnum þessa dagana. Ólafía Hrönn hefur áður leikið í verkinu.

„Þá mátti ég reyndar velja hvort ég fengið að leika vagnstjóra eða afturenda á asna. Ég hugsaði mig lengi um. Ég var um tólf eða þrettán ára og var búin að ákveða að verða leikkona þá. Ég ákvað að taka afturendann og hugsaði að þetta væri mikil áskorun að hanga aftan á annarri manneskju og hreyfa bara aftari hlutann á sér.“

Örn Árnason fer með hlutverk Bæjarfógetans Bastían en þetta er í fjórða sinn þar sem hann leikur í verkinu. Fyrst tók hann þátt árið 1984, síðan 1995 og síðast 2008. Það kom alveg til greina að Örn færi með hlutverk Soffíu frænku. 

„Ég lék svo margar konur í Spaugstofunni að ég hefði alveg ráðið við það,“ segir Örn.

Hér að neðan má sjá innslagið um verkið Kerdemommubæinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.