Fullyrt að metfjöldi smita hafi greinst innanlands í gær Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 6. október 2020 08:53 Mesti fjöldi sem greinst hefur í þessari bylgju er 75 manns. Vísir/Vilhelm
Uppfært: 99 greindust með kórónuveiruna sem veldur Covid-19 sjúkdómnum í gær. Nánar hér. Metfjöldi smita í þessari bylgju kórónuveirufaraldursins greindist innanlands í gær. Þetta er fullyrt í frétt á vef RÚV og haft eftir heimildum. Heimildir Vísis herma svo einnig en mesti fjöldi sem greinst hefur á einum degi í þessari bylgju er 75. Það var 18. september en talsvert fleiri smit en það greindust í gær. Samkvæmt upplýsingum Vísis er nú verið að funda um stöðuna en tölurnar verða ekki birtar fyrr en klukkan 11 eins og venja er. Haldinn var upplýsingafundur í gær og ætti næsti fundur að vera á fimmtudag. Að því er segir í frétt RÚV hafa ekki greinst jafnmörg smit hér á landi og greindust í gær síðan í vor, þegar faraldurinn stóð sem hæst. Flest smit sem greinst hafa á einum degi eru 106 sem var þann 24. mars. 59 greindust með kórónuveiruna í fyrradag og eru nú hátt í 800 manns í einangrun á Íslandi vegna Covid-19, samkvæmt tölfræðiupplýsingum á covid.is. Þá liggja fimmtán á Landspítalanum vegna Covid-19, samkvæmt nýjustu upplýsingum um innlagnir. Þar af eru þrír á gjörgæslu og eru þeir allir í öndunarvél. Fréttin var uppfærð klukkan 09:03.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Sjá meira