Tónlist

Föstudagsplaylisti Theodóru Bjarkar Guðjónsdóttur

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Sköpunarþörf Theodóru nær gjarnan hámarki á þessum árstíma.
Sköpunarþörf Theodóru nær gjarnan hámarki á þessum árstíma. Sunna Ben

Í tilefni hrekkjavökuhelgar leitaði Vísir á náðir Theodóru Bjarkar, sem þeytt hefur skífum undir nafninu DJ Vetrarsorg, til að setja saman föstudagslagalista.

Hún er hlédræg húsmóðir í Vesturbænum, fyrrum plötusnælda hjá Reykjavík Goth Night og gotneskur fagurkeri. Hún dáir að eigin sögn haustið, Hrekkjavökuna og þann forneskjulega heiðindóm sem loðir við árstímann.

„Sköpunarþörf mín nær gjarnan hámarki á þessum árstíma og síðustu árin hef ég blygðunarlaust farið offari við að skreyta húsið mitt á sem hryllilegastan hátt fyrir grímuklædd börn og aðrar furðuverur sem hafa lagt leið sína til okkar að biðja um grikk eða gott. Það er dapurlegt að í ár skuli Hrekkjavakan vera haldin í skugga kórónuveirunnar þar sem flakk á milli húsa og samgangur við ókunnuga er ekki beinlínis vel séð. Það er líka ákveðinn missir af Halloween-partístandi hinna fullorðnu þar sem karníval og hryllingsblandin gleðin voru við völd.“

Lagalistann segir Theodóra vera innblásinn af þessu skrítna ástandi í bland við hefðbundinn drunga, myrkrarómantík og lakkríssvarta gotnesku. Á honum sé samtíningur af synth/post-punk drunga-elektróník í bland við rammíslenskan draugagang og annarlegar hljómkviður úr furðuheimi David Lynch. Hann sé einkum hugsaður sem spúkí og þægileg bakgrunnstónlist fyrir grunnskólastelpur í andaglasi.

„Hrekkjavökustemningin verður lágstemmdari og heimilislegri í ár en gefur okkur tækifæri til að fá útrás fyrir dauðaangistina, kvíðann og einmanaleikann sem faraldurinn hefur lagt á okkur. Ekki má gleyma því að eitt vinsælasta stef myndlistarinnar á miðöldum í kjölfar plágunnar miklu var hið svonefnda danse macabré, dauðadansinn þar sem dauðlegir menn, jafnt háir sem lágir sjást dansa við glottandi beinagrindur í drungalegum hringdansi til að minna guðhrædda kirkjugesti á forgengileika lífsins. Danse Macabré kjarnar ágætlega boðskap Hrekkjavökunnar og minnir okkur á að ekkert varir að eilífu, á eftir sumri kemur haust og að loknum vetri kemur vor. Og skemmtilegt er myrkrið,“ segir Theodóra Björk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.